VINNURÉTTARVEFUR ASÍ

Veikindaréttur

Til að eiga rétt á greiðslu launa í veikindum þarf að vera ráðningarsamband milli launamanns og atvinnurekanda þ.e. gildur ráðningarsamningur. Engar formkröfur eru um ráðningar almenns launafólks og lög nr. 19/1979 ná með örfáum undantekningum til alls launafólks á almennum vinnumarkaði. 

Gildur ráðningarsamningur getur þannig komist á milli launamanns og atvinnurekanda með óformlegum hætti þ.e. munnlega eða skriflega. Fólk sem kann að vera lausráðið samkvæmt ákvæðum í ráðningarsamningi á sama rétt til greiðslna í veikindum og annað fólk ef það hefur áunnið sér veikindarétt skv. kjarasamningi og er veikt þá daga eða á því tímabili sem ákveðið hafði verið að það starfaði hjá atvinnurekanda. Í sjómannalögum eru ákvæði um sérstaka skipsrúmssamninga. Hafi slíkur samningur ekki verið gerður á það ekki að skerða rétt skipverja til greiðslu launa í veikindum.

VEFTRÉ

Vinnuréttarvefnum er skipt upp í nokkra meginkafla sem hver um sig fjallar um flest sem viðkemur íslenskum vinnurétti, og umgjörð íslensks vinnumarkaðar.

  • Vinnuréttur
  • Um vinnuréttarvefinn