VINNURÉTTARVEFUR ASÍ

Ráðningarkjör og réttindi

Fjarvinnustarfsmenn  skulu njóta sömu réttinda og sambærilegum starfsmönnum í starfsstöð launagreiðanda eru tryggð samkvæmt lögum og  kjarasamningum. Þetta á t.d. við um réttindi vegna slysa sem verða við vinnu fjarvinnustarfsmanna á heimili sínu eða utan fastrar starfsstöðvar og atvinnusjúkdóma sem orsakast af henni með sama hætti og þeim réttindum er almennt skipað. Sjá kaflann um vinnuslys og atvinnusjúkdóma. Hins vegar kann, til að taka tillit til sérstöðu fjarvinnunnar, að vera nauðsynlegt að gera viðbótar kjara- og/eða einstaklingsbundna samninga.

Sömu skilyrði gilda um þátttöku þeirra og framboð í kosningu í þeim  stofnunum sem koma fram fyrir hönd starfsmanna. Fjarvinnustarfsmenn eru taldir með við útreikning og ákvörðun viðmiðunarmarka stofnana (ráða) sem koma fram fyrir hönd starfsmanna í samræmi við lög, kjarasamninga eða venju. Tilgreina skal í upphafi hvaða einingu innan fyrirtækis launamaður tengist til að hann geti notið kjarasamningsbundinna réttinda sinna. 

Engar hömlur má leggja á samskipti fjarvinnustarfsmanna við trúnaðarmenn og trúnaðarmönnum skulu veittar upplýsingar og við þá haft samráð í samræmi við lög, kjarasamninga og venju  þegar fjarvinna er tekin upp.

VEFTRÉ

Vinnuréttarvefnum er skipt upp í nokkra meginkafla sem hver um sig fjallar um flest sem viðkemur íslenskum vinnurétti, og umgjörð íslensks vinnumarkaðar.

  • Vinnuréttur
  • Um vinnuréttarvefinn