VINNURÉTTARVEFUR ASÍ

Launamaður eða verktaki

Ákvæði laga og kjarasamninga um laun, vinnutíma og réttindi, s.s. orlofsréttindi, uppsagnarákvæði og veikinda- og slysarétt, gilda um þá einstaklinga sem selja vinnuafl sitt á vinnumarkaði sem launamenn. Sem launamenn vinna þeir samkvæmt ráðningarsamningi undir stjórn atvinnurekanda í þeim atvinnurekstri sem hann stendur fyrir. Laun og önnur starfskjör sem leiða af kjarasamningi, lögum og ráðningarsamningi starfsmanns er endurgjald launamannsins fyrir það vinnuframlag sem hann innir af hendi í þágu atvinnurekstrar atvinnurekandans. 

Atvinnurekanda ber samkvæmt lögum að standa skil á opinberum gjöldum af launum starfsmanna sinna, auk þess sem skila þarf iðgjöldum til lífeyrissjóðs og gjöldum til stéttarfélags þeirra.

Það er alltaf eitthvað um það að reynt sé að fara á svig við reglur vinnuréttarins og semja sig undan ákvæðum laga um réttindi og skyldur fólks á vinnumarkaði. Sérstaklega er áberandi að reynt er að ráða fólk til starfa sem verktaka eða sjálfstætt starfandi og er þá tilgangur atvinnurekandans að jafnaði sá að sleppa við að greiða laun skv. kjarasamningum og launatengd gjöld, losna undan ábyrgð og skyldum gagnvart hinu opinbera og undan skyldum kjarasamninga t.d. um veikindi, orlof o.fl. Milli aðila er þá ekki gerður hefðbundinn ráðningarsamningur heldur einhverskonar verksamningur.

Með raunverulegum verksamningi er átt við samning þar sem annar samningsaðilinn, verktaki, tekur að sér gegn endurgjaldi að sjá um framkvæmd tiltekins verks, þannig að hann ábyrgist gagnaðila sínum, verkkaupa, tiltekinn árangur af verkinu. Samningurinn er þannig milli tveggja atvinnurekenda þar sem annar atvinnurekandinn tekur að sér tiltekið verk fyrir hinn. Ráðningarsamningur er hins vegar samningur þar sem annar aðilinn, launamaður, skuldbindur sig til að vinna fyrir hinn samningsaðilann, atvinnurekanda, undir stjórn hans og á ábyrgð hans gegn greiðslu í peningum og/eða öðrum verðmætum.

Lagareglur varðandi samskipti atvinnurekanda og launafólks eru iðulega ófrávíkjanlegar og er þannig skilyrðislaust ætlað að tryggja réttindi launafólks. Því er það ekki mögulegt, svo gilt sé, að semja sig undan reglum laga eða kjarasamninga með því einu að kalla samning verksamning, heldur ræðst það af efni samningsins hvort um verksamning eða ráðningarsamning er að ræða.

Erfitt er að gefa einhlít svör við spurningunni um það hvenær einstaklingur telst launamaður og hvenær verktaki. Fjölmörg atriði koma þar til álita, og öll atriði samnings aðila verður að skoða í heild. Þættir eins og afmörkun verks í tíma, afmörkun verks frá almennri starfsemi fyrirtækis, afstaða samningsaðila til samningsins, launatengd gjöld, aðstaða, verkfæri og efni, ábyrgð á verki, áhætta, samband aðila, félagsaðild, greiðslufyrirkomulag, forföll, orlof, persónulegt vinnuframlag, sjálfstæði, skattskil, verkstjórn og vinnutími skipta máli við mat á því hvers konar samning er um að ræða. Um mikilvægi stjórnunaréttarréttarins og sjálfstæðis í því sem stundum eru kölluð ný form ráðningar er t.d. fjallað í máli Uber farveitunnar gegn Aslam frá 19.2.2021. Í þeim dómi er litið m.a. til þess hver ákveði þóknunina, hver ráði samningskjörum, hver ráði hvað og hvenær sé unnið, hver eigi og ráði tækninni og hver sé hinn eiginlegi aðili viðskiptasambandsins milli þjónustukaupanda og veitanda ( málsgreinar 94-101). 

Réttarstaða verktaka er hin sama og annarra sem stunda sjálfstæðan atvinnurekstur. Þeir bera sömu ábyrgð og skyldur. Réttarstaða verktaka er gerólík réttarstöðu launafólks. Verktakar njóta ekki þeirra lágmarkskjara sem samið er um á vinnumarkaði, fá ekki laun fyrir viðurkennda frídaga, fá ekki greitt orlof, desemberuppbót eða orlofsuppbót, eiga ekki rétt á launum í veikindatilfellum, eru ekki slysatryggðir, hafa ekki uppsagnarfrest, eiga ekki rétt á greiðslu launa úr Ábyrgðasjóði launa vegna gjaldþrota, réttur til atvinnuleysisbóta er takmarkaður og þeir verða sjálfir að standa skil á iðgjöldum til lífeyrissjóðs.

Dómar, bæði íslenskir og erlendir, veita mikilvæga leiðsögn um mörk launavinnu og verktöku. Gerð er grein fyrir þeim hér á eftir en einnig er stuttlega fjallað um ný form vinnunnar sem þróast hafa innan þess sem stundum er kallað deilihagkerfið.  

VEFTRÉ

Vinnuréttarvefnum er skipt upp í nokkra meginkafla sem hver um sig fjallar um flest sem viðkemur íslenskum vinnurétti, og umgjörð íslensks vinnumarkaðar.

  • Vinnuréttur
  • Um vinnuréttarvefinn