Gera verður greinarmun á launum og ýmiss konar hlunnindum eða fríðindum svo og endurgreiðslum vegna útlagðs kostnaðar, svo sem greiðslu á ferðareikningum starfsmanna sem ferðast á vegum atvinnurekanda og greiðslum vegna notkunar eigin bifreiðar í þágu atvinnurekstrar. Samkvæmt skattalögum á að greiða skatta af öllum hlunnindum. Hafi starfsfólk frítt fæði ber því samt sem áður að greiða skatta af fæðinu. Ríkisskattstjóri semur og gefur út sérstakt hlunnindamat einu sinni á ári og ber fólki að greiða skatta af hlunnindum á grundvelli þess mats.
Ekki er þó skylt að greiða staðgreiðslu af öllum launum og hlunnindum. Í reglugerð nr. 591/1987 um laun, greiðslur og hlunnindi utan staðgreiðslu eru listaðar þær greiðslur sem ekki eru staðgreiðsluskyldar. Þessar greiðslur eru helstar ökutækjastyrkir, sem greiddir eru samkvæmt sundurliðuðum gögnum, dagpeningar, ferðapeningar og hliðstæður ferða- og dvalarkostnaður, svo og einkennisfatnaður sem launagreiðandi lætur launamanni í té.
Dagpeningar
Dagpeningar eru ekki hlunnindi og meginreglan sú að atvinnurekandi greiðir ferðakostnað starfsmanna sinna sem þurfa að ferðast á hans vegum. Honum er hins vegar heimilt að greiða dagpeninga þess í stað. Það er einfaldlega aðferð til greiðslu kostnaðar sem launafólk verður fyrir vegna ferða í þágu atvinnurekanda. Í kjarasamningum er oftast vísað í ákvarðanir ferðakostnaðarnefndar ríkisins. Dagpeningar sem greiddir eru umfram það sem Ríkisskattstjóri metur sem eðlilegan kostnað skattleggjast hins vegar eins og laun og hlunnindi.
Í „Forsendum útreikninga á akstursgjaldi og dagpeningum ríkisstarfsmanna“ er gerður greinarmunur á dagpeningum innanlands og erlendis. Um dagpeninga innanlands segir: „Dagpeningar innanlands ná til kostnaðar vegna gistingar og fæðis.“ Um dagpeninga erlendis segir hins vegar: „Dagpeningar vegna ferðalaga erlendis ná til alls almenns ferðakostnaðar annars en fargjalda, þ.e. kostnaðar vegna ferða að og frá flugvöllum, ferðakostnaðar innan þess svæðis sem dvalið er á, gistingar, fæðis, minni háttar risnu og hvers kyns persónulegra útgjalda.“