Útgáfuhóf á miðvikudag - GJÖFIN TIL ÍSLENZKRAR ALÞÝÐU

Mengi, Óðinsgötu 2

Við fögnum glæsilegri listaverkabók um GJÖFINA TIL ÍSLENZKRAR ALÞÝÐU í Mengi Óðinsgötu 2, miðvikudaginn 13. nóvember kl. 17. Uppákomur, matur og guðaveigar í boði.

---
Halldór Björn Runólfsson spjallar við Kristínu Guðnadóttur listfræðing og Arnar&Arnar hönnuði um gerð bókarinnar. Óvæntar uppákomur – léttar veitingar úr Eldhúsi grænkerans – DJ Motherfunker sér um tónlistina.

Bókin verður á sérstöku tilboðsverði í útgáfuhófinu.

---
GJÖFIN TIL ÍSLENZKRAR ALÞÝÐU er veglegt rit sem fjallar um öll verkin 147 sem tilheyra gjöf Ragnars í Smára til Alþýðusambands Íslands. Gjöfin, sem hefur að geyma verk eftir marga af þekktustu myndlistarmönnum þjóðarinnar, varð kveikjan að stofnun Listasafns ASÍ 1961. Þetta er í fyrsta sinn sem stofngjöf Ragnars í Smára kemur út á bók sem ein heild.

Það er Listasafn ASÍ sem gefur bókina út, Elísabet Gunnarsdóttir safnstjóri ritstýrði verkinu.