Morgunfundur um samstarf í málefnum Evrópska efnahagssvæðisins

Grand hótel

Miðvikudaginn 13. mars efnir utanríkisráðuneytið til morgunfundar um samstarf í málefnum Evrópska efnahagssvæðisins ásamt Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins.

Fundurinn er haldinn á Grand hótel Reykjavík frá klukkan 8:30 til 10:00. Dagskrá fundarins og skráning eru á vef Stjórnarráðsins.

Á fundinum verður kynntur nýr opinn EES gagnagrunnur þar sem EES-gerðir eru aðgengilegar á einum stað og upplýsingaveita um Evrópska efnahagssvæðið sett í loftið. Rætt verður hvernig atvinnulífið og launþegasamtök geta haft áhrif á mótun löggjafar á EES svæðinu og hvernig auka megi samstarf hér á landi um málefni sameiginlega markaðarins.

Opnunarávarp: Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra

Erindi flytja eftirtalin:

  • Mikilvægi EES fyrir atvinnulífið: Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA, og Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs SA.
  • Vannýtt tækifæri og hagsmunir launafólks: Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ.
  • Kynning á opna EES gagnagrunninum og upplýsingaveitu um EES samstarfið: Kristín Halla Kristinsdóttir, sérfræðingur á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytis.


Í framhaldi fara fram pallborðsumræður:

  • Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunar- og alþjóðasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Björg Ásta Þórðardóttir, lögfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins
  • Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands
  • Nikulás Hannigan, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins


Fundarstjóri: María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri upplýsinga- og greiningardeildar utanríkisráðuneytisins.

Nánari upplýsingar og skráning eru á vef Stjórnarráðsins.