Íslenska bankakerfið: okur eða almannahagur?

VOX Club, Hilton Reykjavík Nordica - Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík

ASÍ, BSRB, BHM og Neytendasamtökin standa fyrir morgunverðarfundi um nýútkomna skýrslu um gjaldtöku og arðsemi bankanna þann 3. október kl. 08:30-10:30, í salnum Vox Club á Hilton hóteli. Léttur morgunverður verður í boði frá 08:00.

Hefur bættur rekstur bankanna skilað sér í betri kjörum til viðskiptavina bankanna? Er staða neytenda á íslenskum fjármálamarkaði jafn sterk hér á landi og í löndunum í kringum okkur? Hvernig má auka gagnsæi og styrkja stöðu viðskiptavina bankanna? Hvað geta stjórnvöld gert til að efla samkeppni og neytendavernd? 

Á fundinum verður fjallað um niðurstöður nýútkominnar skýrslu starfshóps menningar- og viðskiptaráðherra um gjaldtöku og arðsemi íslensku bankanna. Markmiðið með málþinginu er að dýpka umræðuna um niðurstöður skýrslunnar, fjalla um þær í samhengi við samkeppni og neytendamál og ræða næstu skref fram á við.  

Beint streymi verður af fundinum og hann tekinn upp fyrir þau sem komast ekki á staðinn. 

Dagskrá  

08:30 - 08:40: Ávarp - Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra 

08:40 - 08:50: Niðurstöður skýrslunnar - Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands  

08:50 - 09:05: Mikilvægi samkeppni á bankamarkaði - Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins 

09:05 - 09:20: Neytendavernd á fjármálamarkaði - Þórunn Anna Árnadóttir, forstjóri Neytendastofu 

09:20 - 09:30:  - Eftirlit fjármálaeftirlits Seðlabankans með viðskiptaháttum -  Inga Dröfn Benediktsdóttir, forstöðumaður í viðskiptaháttaeftirliti hjá Fjármálaeftirlitinu  

09:35 - 09:45: Frúin í Þórshöfn - Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna  

09:45 - 10:00: Tölum um samkeppni: Hvernig Indó varð til og hvert stefnir það - Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri og annar stofnandi Indó  

10:00 - 10:30: Pallborð: Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, Auður Alfa Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands og Haukur Skúlason, framkvæmdastjóri Indó. 

Guðmundur Gunnarsson stýrir pallborði.