Fjórða iðnbyltingin – Hvað þurfum við að gera?

Icelandair Hotel Reykjavik Natura, salur 3

Málþing um menntamál

Fjórða iðnbyltingin er hafin – hún hófst fyrir nokkrum árum og hefur óhjákvæmilegar samfélagslegar breytingar í för með sér. Hún hefur áhrif á okkar daglega líf og birtist okkur á ýmsan hátt með aukinni sjálfvirkni og tækninýjungum. En hún hefur ekki síður áhrif í störfum okkar. Til að koma á móts við þær öru breytingar sem verða, þarf að gera öllum kleift að sinna ólíkum störfum.

Þann 25. september heldur menntanefnd ASÍ málþing á Hótel Natura um fjórðu iðnbyltinguna og hvað við þurfum að gera til að undirbúa okkur. 

Smelltu hér til að horfa á streymi. 

Dagskrá: 
09:00- 09:15     Setning Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður menntanefndar.

09:10– 09:15    Kynning/kennsla á Slido – fundarstjóri fer yfir forritið – spurt verður einnar spurningar: Hvað á verkalýðshreyfingin að gera til að undirbúa einstaklinga undir 4. iðnbyltinguna?
 
09:15– 09:45     Byltingar og breytingar í námi og kennslu Tryggvi Thayer, Ph.D, framtíðarfræðingur og kennsluþróunarstjóri Menntavísindasviðs HÍ.
 
09:45– 10:15     Hvernig lítur framtíðin út? Ragnheiður Hrefna Magnúsdóttir, forstöðumaður hjá Veitum.

10:15– 10:30     KAFFI 
 
10:30– 11:00     Hvað getum við gert? Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ
 
11:00– 11:55      Pallborð – stjórnandi Snorri Már Skúlason
                              Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður menntanefndar ASÍ
                              Sveinn Aðalsteinsson, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
                              Guðjónína Sæmundsdóttir, Kvasir
                              Lísbet Einarsdóttir, Starfsafl
                              Helga Ingólfsdóttir Framtíðarnefnd VR
 
Spurt verður:
Hvað þurfum við að gera til að takast á við þessar breytingar? 


11:55 – 12:00 Samantekt - fundarstjóri

Dagskrá