Akureyri - undirbúningsfundur fyrir 43. þing ASÍ

ASÍ Logo

Undirbúningsfundur fyrir 43. þing Alþýðusambandsins sem fer fram 24.-26. október 2018.

Á fundinum verða þrjú viðfangsefni þingsins kynnt með stuttum framsögum auk þess sem Gylfi Arnbjörnsson heldur erindi um áskoranir á vinnumarkaði og valkosti í kjarabaráttu. Ávarp formanns stéttarfélags á staðnum. Eftirfarandi málefni voru til umfjöllunar:

a. Tekjuskipting og jöfnuður
b. Tækniþróun og skipulag vinnunnar
c. Jafnvægi atvinnuþátttöku og einkalífs

Tilgangur fundanna var að auðvelda þátttakendum að tjá sig um það sem á þeim brennur, kynna þeim viðfangsefnin og gera þeim kleift að koma með ábendingar og tillögur að áherslum og aðgerðum af hálfu Alþýðusambandsins og aðildarfélaganna. Notast var við fundarform sem byggir á sem mestri virkni fundarmanna.