100 ára afmæli ASÍ - Árbæjarsafn

Árbæjarsafn

Afmælisboð ASÍ á Árbæjarsafni 28. ágúst 2016 kl. 13 -16 – frítt inn

Alþýðusamband Íslands fagnar 100 ára afmæli í ár og einn liður í að minnast þeirra tímamóta er afmælisboð ASÍ í Árbæjarsafni þann 28. ágúst nk. Alþýðusambandið býður upp á fjölbreytta dagskrá í safninu sem bregður birtu á aðstæður og aðbúnað íslensks verkafólks á síðustu öld. Boðið verður upp á leiðsagnir, ratleik, þvottaburð, kassabílaakstur auk þess sem börnin fá stutta ferð á hestbaki. Þorskur verður þurrkaður á túni, Lummur bakaðar í Hábæ, prentari, skósmiður og gullsmiður taka á móti gestum á verkstæðum sínum og Lúðrasveit verkalýðsins gleður gesti með spilamennsku sinni.

Leiðsagnir:

Kl. 13 – Baráttan um brauðið

Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ og fimm barna móðir
Skoðuð verða áhrif þeirrar lífskjarabyltingar sem barátta verkalýðshreyfingarinnar hefur skilað undanfarna öld á neysluhætti almennings. Hagstærðir fortíðar settar í samhengi við nútímann.

Kl. 14 – Hjáverk kvenna

Maríanna Traustadóttir, mannfræðingur og jafnréttisfulltrúi ASÍ:
Varpað verður ljósi á frumkvæði og hugmyndaauðgi kvenna við atvinnusköpun á síðustu öld. Með tekjuöflun sinni náðu þær að skapa betri aðstæður fyrir sig og sína.

Kl. 15 - Húsnæðismál

Halldór Grönvold, vinnumarkaðsfræðingur og áhugamaður um verkalýðssögu:
Varpað verður ljósi á húsnæðisvanda verkafólks síðustu hundrað ár. Birtingarmyndir, þróunina og baráttu verkalýðshreyfingarinnar fyrir mannsæmandi húsnæði á viðráðanlegu verði.


Aðgangur er ókeypis.