Innflytjendur á vinnumarkaði

Innflytjendur á vinnumarkaði

Við vinnum með íslensku

Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn. Þessi vísun í einkennismerki ASÍ, um samtakamátt heildarinnar, á einkar vel við – fólk af erlendum uppruna er nú fimmtungur launafólks og rúm 15% íbúa landsins. Á tveimur áratugum hefur fjöldi þeirra sexfaldast.

Verkalýðshreyfingin hefur fylgst grannt með þessari þróun um árabil. Samfara innstreymi aðflutts launafólks hefur hreyfingin orðið vitni að og þurft að bregðast við sívaxandi brotastarfsemi á íslenskum vinnumarkaði.

Verkalýðshreyfingin hlýtur að leitast við að styrkja enn frekar veikustu hlekki sína og taka skref í að útvíkka keðjuna svo að hún nái utan um allt launafólk og endurspegli þannig nýja samsetningu íslensks vinnumarkaðar.

  1. Aðgengi að íslenskukennslu verði stóreflt
  2. Atvinnuréttindi umsækjenda um alþjóðlega vernd endurskoðuð
  3. Fjárfesting í íslenskukennslu verði stóraukin
Ályktun ASÍ um innflytjendur á vinnumarkaði