Alþýðusamband Íslands er virkur þátttakandi í alþjóðastarfi. Þátttaka ASÍ endurspeglar hvoru tveggja alþjóðlegan uppruna samtaka launafólks og ört vaxandi mikilvægi alþjóðastarfs fyrir verkalýðshreyfinguna og félagsmenn hennar.

Alþjóðavæðingunni með auknum viðskiptum og samskiptum á öllum sviðum fylgja ný úrlausnarefni, hættur en einnig tækifæri fyrir samtök launafólks. Aukið samstarf Evrópuríkja og þátttaka Íslands í EES með sameiginlegum vinnumarkaði Evrópuríkja og löggjöf og samstarf á fjölmörgum sviðum er mikilvægur þáttur í þessari þróun. Með þátttöku sinni á alþjóðavettvangi tekur ASÍ þátt í umræðu, stefnumótun og ákvarðanatöku á alþjóðavísu, nýtir þekkingu og reynslu úr alþjóðlegu starfi og árangur alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar fyrir íslenskt launafólk, og leggur sitt af mörkum til að efla alþjóðlega samstöðu launafólk og styður uppbyggingarstarf og réttindabaráttu í þróunarríkjunum.

Samstarf á vettvangi Norðurlandanna var lengi vel þungamiðjan í alþjóðastarfi ASÍ. Á undanförnum árum hefur samstarf á Evrópuvettvangi vaxið mjög, einkum eftir að Ísland gerðust aðili að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Þá hefur verið lögð vaxandi áhersla á starf að réttindamálum launafólks á alþjóðavísu. Alþjóðastarf ASÍ byggir í megindráttum á aðild að NFS, ETUC og ITUC og virkri þátttöku í starfi ILO og TUAC.

NFS. ASÍ er aðili að samstarfi heildarsamtaka launafólks á norðurlöndunum, NFS – Nordens Fackliga Samorganisation. Forsetar stærstu heildarsamtakanna fara til skiptis með embætti forseta NFS þ.a. forseti NFS komi ætíð frá sama landi og fer með forystu í Norðurlandaráði. Æðsta vald NFS liggur hjá þingi NFS en á milli þeirra hjá framkvæmdastjórn sem skipuð er forystumönnum heildarsamtaka frá hverju landi, skipt í hlutfalli við stærð. Þar á ASÍ tvö stjórnarsæti. Sérstök 5 manna stjórn, skipuð forseta og varaforesta NFS auk þriggja annarra undirbýr stjórnarfundi. Sérfræðingar heildarsamtakanna innan NFS eiga með sér reglulegt samstarf á m.a. á sviði hagfræði, lögfræði, jafnréttis- og umhverfismála.

Alþýðusambönd á hinum Norðurlöndunum:

Í gildi innan NFS eru sérstakar skiptireglur þar sem fjallað er um hvernig aðildarstaktök NFS skipta með sér stjórnarsetu á alþjóðavettvangi.

ETUC. ASÍ á aðild að sambandi heildarsamtaka launafólks í Evrópu, ETUC – European Trade Union Confederation. Æðsta vald ETUC liggur hjá þingi sambandsins sem kýs forystu þess sem fer með daglega stjórn,  en á milli þinga framkvæmdastjórn sem skipuð er auk forystunnar af einum fulltrúa frá hverjum aðildarsamtökum og einum til vara. Sérstök minni stjórn undirbýr fundi framkvæmdastjórnar. ASÍ á vegna aðildar sinnar rétt til þess að eiga fulltrúa í hinum ýmsu starfsnefndum ETUC. Skipað er í þær allar en megináhersla lögð á að fylgjast með störfum þeirra og afla gagna án þess að fundur séu sóttir nema sérstök ástæða sé til. Jafnframt starfa samráðshópar sérfræðinga aðildarsamtakanna og taka sérfræðingar ASÍ þátt þeim.

ITUC. ASÍ á aðild að alþjóðasamtökum launafólks,  ITUC – International Trade Union Confederation. Æðsta vald ITUC liggur hjá þingi sambandsins sem kýs æðstu forystu þess sem aftur kýs úr sínum röðum minni framkvæmdastjórn. Aðilarsamtök ITUC í Evrópu mynda sérstakan samráðsvettvang, PERC – Pan European Regional Council.

ILO. Ísland á aðild að ILO – Alþjóðavinnumálastofnuninni. Stjórn stofnunarinnar og allt starf hennar er þríhliða þ.e. verkalýðshreyfingin og samtök atvinnurekenda fara með sitt hvort atkvæðið og hver ríkisstjórn tvö. Í hverju aðildarríki eru það stærstu heildarsamtök launafólks sem fara með atkvæðisrétt og er það vald í höndum ASÍ. Æðsta vald ILO er árlegt þing stofnunarinnar sem jafnframt kýs 56 manna stjórn hennar þar sem verkalýðshreyfingin á 14 atkvæðisbæra fulltrúa og 14 varafulltrúa. ITUC kemur fram f.h. verkalýðshreyfingarinnar á þessum vettvangi og hafa Norðurlöndin eftir skiptireglu ætíð átt sæti í stjórn, ýmist með eða án atkvæðisréttar. ASÍ tók ekki þátt í þeim skiptum þar til 2019. Fulltrúi Norðurlandanna á að jafnaði einnig eitt sæti af þremur fyrir hönd stjórnarfulltrúanna í níu manna Félagafrelsisnefnd ILO, CFA – Committee of Freedom of Association.

TUAC. Heildarsamtök launafólks í öllum aðildarríkjum OECD geta átt aðild að ráðgjafanefnd OECD, TUAC – Trade Union Advisory Committee. Hagfræðingur ASÍ hefur sinnt því hlutverki.

SAMAK. Jafnaðarmannaflokkarnir á Norðurlöndunum ásamt þeim alþýðusamböndum sem sögulega hafa á nánust tengsl við þá mynda samráðsvettvanginn SAMAK – Arbeiderbevegelsens Nordiske Samarbeifskomite sem hefur verið til síðan 1886. Forysta flokkanna og sambandanna stýra þessu starfi og misjafnt hve virkt ASÍ er innan þess.

VN. Ísland, Færeyjar og Grænland mynda VN – Vest Norden sem er samráðsvettvangur heildarsamtaka launafólks í þessum löndum. Forsetar og varaforsetar ASÍ sinna þessu samstarfi sem ekki er reglulegt en á þó að koma saman til ársfunda. Starfið speglar samstarf þjóðþinga þessara sömu landa undir heitinu Vestnorræna ráðið er þar sitja 18 þingmenn, sex frá hverju landi.

Auk samstarfs á vettvangi alþjóðlegrar verkalýðshreyfingar á ASÍ aðild að samstarfi aðila vinnumarkaðarins í EFTA-ríkjunum á vettvangi Ráðgjafarnefndar EFTA og með Efnahags- og félagsmálanefnd Evrópusambandsins, EESC.