Auðlindir í þágu þjóðar
Auðlindir í þágu þjóðar
Varðstaða um auðlindir þjóðarinnar
ASÍ krefst þess að almannahagsmunir ráði för við auðlindanýtingu, að auðlindir verði nýttar í þágu þjóðarinnar og að almenningur njóti þess ábata sem verður til vegna þeirrar nýtingar. Á meðan hagnaður og eignir þeirra sem hafa aðgang að auðlindum landsmanna eykst ár frá ári þyngist skattbyrði launafólks og stór hópur býr við erfiðar efnahagslegar aðstæður. Sérhagsmunagæsla og sá ójöfnuður sem misskipting arðsins af auðlindum þjóðarinnar hefur skapað grefur undan undirstöðum samfélagsins og lýðræðinu í landinu.
- Auðlindirnar eru sameign okkar og eðlilegt greitt sé fyrir afnot
- Almannahagsmunir verða að vera leiðandi og sjálfbær nýting
- Gerð verði heildstæð stefna í orku- og auðlindanýtingu
https://youtu.be/VB3UksaKNxE
Auðlindir Íslands eru ríkulegar og af nýtingu þeirra ætti að greiða eðlilegt gjald til samfélagsins sem nýttist okkur öllum til handa.
Meirihluti landsmanna telur hlutdeild almennings í arði við auðlindanýtingu vera ósanngjarna.
Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna vill að orkuauðlindanýting sé í höndum ríkisins

