Stefna ASÍ í vinnuverndarmálum

Réttindi launafólks á íslenskum vinnumarkaði eru óðum að verða sambærileg við það sem gerist í nágrannalöndum okkar í Evrópu. Það helgast af baráttu verkalýðs­hreyf­ing­ar­innar, nánu norrænu samstarfi, samningnum um EES og alþjóðlegum mann­rétt­inda­sáttmálum. Aðild Íslands að EES og þær skyldur stjórnvalda sem henni fylgja hafa frá gildistöku samningsins fært íslensku launafólki talsverðar réttarbætur. Þess sér bæði stað í kjarasamningum og í löggjöf. Réttindi íslenskrar verkalýðshreyfingar lúta svipuðum lögmálum og annars staðar gerist en þó virðist sem samhliða auknum einstaklingsbundnum réttindum launafólks sé harðar sótt að sjálfstæðum réttindum verkalýðs­hreyfingarinnar. Gegn því verður að hamla.

Starfsöryggi, góðar vinnuaðstæður öryggi, líkamleg og andleg vellíðan á vinnustað eru með mikilvægustu hagsmuna- og réttindamálum launafólks.

Hér á landi hefur mikilvægum alþjóðlegum samþykktum og tilskipunum ESB er varða ráðningarvernd, vernd gegn órökstuddum uppsögnum, hlutastörf, tíma­bundna ráðningarsamninga, útsenda starfsmenn, upplýsingagjöf, samráð og jafnrétti ekki verið hrint í framkvæmd enn sem komið er. Að því vinnur ASÍ sjálfstætt og í samvinnu við stjórnvöld og samtök atvinnurekenda.

Við skipulagningu vinnunnar á að taka ríkt tillit til hagsmuna starfsmanna og vinnuverndarsjónarmiða. Hóflegur vinnutími, álag og góð hvíld eru mikilvægir þættir í fyrirbyggjandi vinnuvernd og velferð launafólks. Koma verður í veg fyrir að tæknibreytingar og nýr búnaður auki álag og skapi hættu á slysum og atvinnusjúkdómum.

Alhliða heilsuvernd starfsmanna er mikilvægt tæki til að stuðla að vinnuvernd og vellíðan starfsmanna. Í heilsuvernd starfsmanna ber að leggja áherslu á fyrir­byggjandi aðgerðir og hagnýtar upplýsingar til þeirra og stjórnenda.

Það er á ábyrgð atvinnurekenda að tryggja að öryggi og vinnuaðstæður starfs­manna séu í samræmi við lög og reglur og á ábyrgð starfsmanna að gæta heilsu sinnar og öryggis á vinnustað. Það er á ábyrgð stjórnvalda að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar og setja reglur um atvinnustarfsemi sem vernda launafólk og fylgja því eftir að vinnuverndarreglum sé framfylgt. Það er hlutverk verkalýðshreyfingarinnar að sjá til þess að og við þessar skyldur og ábyrgð sé staðið. Það er einnig hlutverk hennar að eiga frumkvæði að úrbótum og miðla upplýsingum til félagsmanna sinna.

Áherslur ASÍ: