1.gr.

Skrifstofa Alþýðusambands Íslands skal undirbúa og hrinda í framkvæmd ákvörðunum sambandsþinga ASÍ og kjörinnar forystu sambandsins, miðstjórnar og forseta.

2.gr.

Miðstjórn samþykkir starfs- og fjárhagsáætlun fyrir skrifstofu ASÍ fyrir hvert starfsár.

Miðstjórn skipar starfsnefndir sem vinna með skrifstofunni að undirbúningi og framkvæmd stefnu Alþýðusambands Íslands á milli sambandsþinga. Miðstjórn skipar fulltrúa úr sínum hópi til starfa með nefndunum í samræmi við nánari reglur sem miðstjórn setur og er hann jafnframt formaður nefndarinnar.

Við skipan í nefndir og ráðningu starfsmanna á skrifstofu skal leitast við að hlutdeild karla og kvenna verði sem jöfnust.

3.gr.

Forseti er fulltrúi miðstjórnar á skrifstofu ASÍ og starfar í umboði hennar.

Fyrsti varaforseti gegnir störfum forseta í forföllum hans og annar varaforseti í forföllum fyrsta varaforseta og þriðji varaforseti í forföllum annars varaforseta.

4.gr.

Stjórnun á daglegri starfsemi skrifstofu ASÍ skal vera í höndum forseta og framkvæmdastjóra í umboði miðstjórnar.

Forseti kemur fram fyrir hönd Alþýðusambandsins innan og utan hreyfingarinnar í stærri málum.

Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegri starfsemi skrifstofunnar sem byggir á starfs- og fjárhagsáætlun sem samþykkt er af miðstjórn.

5.gr.

Ramminn fyrir skipulag starfsemi skrifstofu ASÍ skal vera með þeim hætti sem sýnt er á eftirfarandi skipuriti.

6.gr.

Reglugerð þessi er sett skv. heimild 2. mgr. 19. gr. laga ASÍ og tekur þegar gildi.

Þannig samþykkt í miðstjórn ASÍ 18.janúar 2023.