Setningarræða forseta ASÍ á 47. þingi

Höfundur

Ritstjórn

47. þing Alþýðusambands Íslands var sett nú í morgun og stendur næstu þrjá daga. Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, setti þingið formlega klukkan 10:00 og flutti setningarræðu, sem lesa má hér fyrir neðan.

Góðir þingfulltrúar, ágætu gestir.

Við þökkum Lúðrasveit verkalýðsins kærlega fyrir þennan kröftuga tónlistarflutning.

Ég býð ykkur öll  – og þau sem fylgjast með í streymi – velkomin á 47. þing Alþýðusambands Íslands.

Yfirskrift þessa þings er „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu“ og við munum nota þennan opna hluta þingsins fram til klukkan eitt til að hlýða á umræður og erindi um þetta mikilvæga efni.

Hefðbundin þingstörf hefjast síðan eftir hádegisverðarhlé.

Þingið er æðsti vettvangur Alþýðusambands Íslands og hér eigum við að ræða af hreinskilni hvert við viljum stefna og hvernig við ætlum að takast á við þau verkefni sem bíða okkar.

Mér finnst yfirskrift þessa þings vel valin. Hún vísar beint til breytinga sem þegar eru hafnar og munu hafa mikil áhrif á launafólk og verkalýðshreyfinguna á næstu árum.

Vinnan hefur alla tíð breyst með tækninni. Við höfum áður séð vélar taka við störfum sem fólk vann og tölvutæknin hefur á nokkrum áratugum gjörbreytt heilu starfsgreinunum. Nú stöndum við frammi fyrir næsta stóra skrefi og hraðinn er mikill.

Gervigreind er þar augljósasti þátturinn, en breytingarnar eru víðtækari. Reiknirit eru þegar farin að stýra vinnu fólks. Þau geta ákveðið vaktir og verkefni, fylgst með afköstum eða lagt mat á frammistöðu. Gervigreind getur tekið yfir verk sem við hefðum fyrir fáum árum talið að kölluðu á mannlegt mat og mikla reynslu.

Þessi þróun verður ekki stöðvuð.

Það er heldur engin ástæða til þess. Tækniframfarir geta orðið okkur til mikilla hagsbóta. Þær geta létt fólki erfið störf og aukið framleiðni. Í mörgum tilvikum geta þær einfaldlega gert vinnuna betri.

Við eigum að nýta þau tækifæri.

En við þurfum að hafa áhrif á hvernig það er gert.

Starfsmaður sem er metinn af tölvukerfi á rétt á að vita á hvaða forsendum matið byggist. Þegar tæknin er notuð til að fylgjast með fólki þarf að vera ljóst hvaða upplýsingum er safnað og hvað verður um þær. Mannleg ábyrgð má heldur ekki hverfa á bak við reiknirit sem enginn kann eða vill útskýra.

Persónuvernd fólks hverfur ekki þegar það mætir til vinnu.

Síðan er spurningin um ávinninginn. Ef ný tækni gerir fyrirtæki kleift að framleiða meira á skemmri tíma á launafólk að njóta þess. Það á að sjást í kjörum þess og vinnuaðstæðum. Og ef tæknin sparar mikinn vinnutíma er fullkomlega eðlilegt að ræða hvort hluti þess ávinnings eigi að skila sér í styttri vinnutíma.

Þarna verða átök. Það er ekkert nýtt.

Sagan kennir okkur að aukin framleiðni skilar sér ekki sjálfkrafa með sanngjörnum hætti. Um skiptingu verðmætanna hefur alltaf verið tekist og það verður áfram gert.

Sama á við þegar störf breytast. Fólk verður að geta aflað sér nýrrar þekkingar meðan breytingarnar standa yfir. Það er vond niðurstaða ef starfsmaður kemst fyrst að því að menntun hans og reynsla duga ekki lengur þegar búið er að leggja starfið niður. Sí- og endurmenntun verður því miklu stærra verkefni á vinnumarkaði en hún hefur verið.

Að mínu mati snýst þetta allt að lokum um vald.

Hver ræður ferðinni þegar tæknin kemur inn á vinnustaðinn? Og fær launafólk raunverulegt sæti við borðið?

Við blasir að þetta verður risavaxið verkefni fyrir verkalýðshreyfinguna á næstu árum og þess vegna er rétt að við hefjum umræðuna hér á þessu þingi.

Brostnar forsendur

Kæru félagar.

Verðlagsforsenda kjarasamninganna brast eins og við töldum sýnt strax á vormánuðum.

Ég veit að ég þarf ekki að fara yfir atburðarás síðustu daga en ég fagna því að tekist hafi að ljúka málinu með farsælum hætti þannig að samningarnir haldi.

Tvennt skiptir hér mestu máli að mínu viti; annars vegar þurfum við að draga lærdóm af því sem gerðist og hins vegar tel ég að við eigum öll að fagna þeim mikla árangri sem náðist, einkum gagnvart stjórnvöldum.

ASÍ og félögin héldu uppi býsna miskunarlausri gagnrýni gagnvart stjórnvöld um fyrirtækjum fyrir það sem við sögðum hrein „svik” við þær skuldbindingar sem þessir aðilar gengust undir við gerð samninganna 2024 og ákveðnar voru í þeim tilgangi að vinna bug á verðbólgu og þannig skapa forsendur fyrir lækkun vaxta.

Það sem skiptir mestu nú er hvaða lærdóm við drögum af því og hvað gerist næst.

Launafólk tók á sig ábyrgð með gerð samninganna. Markmiðið var að skapa svigrúm til að ná verðbólgu og vöxtum niður. Slík leið getur aðeins gengið ef aðrir sem ráða miklu um þróunina axla einnig sína ábyrgð.

Sú gagnrýni stendur; ríkið, sveitarfélögin og stórfyrirtækin hundsuðu þær tryggingar sem gefnar höfðu verið. Þessir aðilar öxluðu ekki ábyrgð á meðan launafólk og verkalýðshreyfingin stóð við sitt.

Þetta þekkjum við og vitum; mér sýnist alveg ljóst að þessi leið verði ekki farin aftur í kjarasamningum til lengri tíma án þess að fyrir liggi skýrar og ótvíræðar tryggingar þess efnis að ríki, sveitarfélög og fyrirtæki muni standa við gefin loforð.

Ég get ekki neitað því að þarna tel ég að alvarlegur trúnaðarbrestur hafi myndast sem óhjákvæmilegt verði að takast á við hyggist menn fara aftur slíkar leiðir í kjarasamningum til lengri tíma.

En á hinn bóginn höfum við líka ástæðu til að fagna. Þá vísa ég sérstaklega til yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar þar sem er að finna skýr loforð um aðgerðir í mikilvægum umbótamálum sem við höfum lengi barist fyrir.

Ég nefni aukin framlög í almenna íbúðakerfið, verðtryggingu barnabóta,  fyrirheit um að févíti verði leitt í lög, leigubremsu, örorkubótasjóð, keðjuábyrgð og fleira. Þessi mál eru sum hver risastór og gefa fyrirheit um umtalsverðar lífskjarabætur til næstu ára og jafnvel áratuga.

Langar og strangar viðræður við  ríkisvaldið hafa skilað okkur þessu og ég þakka miðstjórn, formönnum og starfsfólki skrifstofu ASÍ fyrir mikla seiglu og ákveðni.

Já, kæru félagar, við eigum að gleðjast yfir sigrunum og hampa þeim!

Hið sama gildir í raun um sameiginlega yfirlýsingu ASÍ, SA, ríkisins og Sambands sveitarfélaga. Þar náðum við töluverðum árangri og nú er undir þessum aðilum komið að standa við fyrirheitin sem þar eru gefin til að ná niður verðbólgu og vöxtum.

Og já, ég geri mér grein fyrir að þarna er að hluta að ræða um loforðin sem þessir aðilar kusu að svíkja.

Hér er traust í húfi sem er og verður forsenda farsæls samstarfs aðila vinnumarkaðarins.

Ríkisfjármál og lífskjör

Ríkisfjármál eru kjaramál.

Það er auðvelt að ræða þau eins og þau séu fyrst og fremst spurning um dálka í Excel-skjali. Fyrir almenning birtast þau með allt öðrum hætti.

Fólk sér þau í heimilisbókhaldinu.

Bætur sem fylgja ekki verðlagi missa gildi sitt. Hærri gjöld fyrir opinbera þjónustu koma beint niður á heimilunum. Þegar stuðningur minnkar lendir munurinn hjá fólkinu sjálfu.

Þetta kemur mjög misjafnlega niður.

Sá sem hefur miklar tekjur eða góða eignastöðu ræður við að taka á sig nokkra tugi þúsunda í viðbótarútgjöldum. Heimili sem var þegar að ná endum saman með naumindum hefur ekkert slíkt svigrúm.

Það er þess vegna sem mér blöskrar hversu oft svonefnt aðhald hefst hjá þeim sem minnst hafa.

Skattarnir hækka sífellt og um leið fá borgararnir sífellt minna fyrir þá. Minnumst þess að þetta eru pólitískar ákvarðanir. Þetta eru mannanna verk.

Fyrirheit forystukvenna ríkisstjórnarinnar um að skattar yrðu ekki hækkaðir „á venjulegt fólk“ hafa augljóslega ekki staðist. Það hefur afleiðingar þegar orð og efndir fara hvor í sína áttina.

Og auðvitað eru aðrar leiðir færar.

Við höfum bent á að tekna megi afla þar sem greiðslugetan er meiri og að kerfið eigi að taka harðar á skattsniðgöngu. Við höfum einnig bent á að sumir hafa svigrúm til að færa atvinnutekjur yfir í fjármagnstekjur og lækka þannig skattgreiðslur sínar.

Um þetta má deila. Það er eðlilegt.

En við skulum þá tala hreint út um hvað er verið að gera.

Þegar stjórnvöld velja að draga úr stuðningi við heimilin eða auka gjaldtöku er verið að velja hver ber kostnaðinn. Ísland er auðugt samfélag og við höfum burði til að halda uppi öflugu velferðarkerfi. Spurningin er hvernig við kjósum að nota þá burði.

Það er pólitík.

Samráð og stjórnmálin

Ég hef líka vaxandi áhyggjur af vinnubrögðum stjórnvalda gagnvart verkalýðshreyfingunni.

Of oft er komið til okkar þegar málið er í raun komið langt á veg. Við fáum að segja okkar álit eftir að meginákvörðunin hefur þegar verið tekin.

Það má kalla þetta samráð.

Gagnsemi þess er í besta falli takmörkuð.

Við höfum séð þetta í breytingum á atvinnuleysistryggingum. Sama tilhneiging hefur birst víðar. Verkalýðshreyfingin getur ekki verið samstarfsaðili stjórnvalda þegar þau þurfa á henni að halda við gerð kjarasamninga og síðan einfaldur umsagnaraðili þegar ákvarðanir eru teknar um réttindi félagsmanna hennar.

Það vinnulag gengur ekki til lengdar – það grefur undan trausti.

Þegar slíkur efi festir rætur er meira undir en traust til einstakrar ríkisstjórnar. Þá fara sjálfar lýðræðislegar undirstöður samfélagsins að veikjast. Lýðræðið getur ekki til lengdar byggst á því að fólk kjósi á nokkurra ára fresti en treysti þess á milli hvorki orðum né verkum þeirra sem fara með völdin.

Þörfin fyrir samstöðu fer síst minnkandi

Ágætu félagar.

Alþýðusamband Íslands er 110 ára á þessu ári.

Á þeim tíma hefur íslenskt samfélag tekið stakkaskiptum. Margt af því sem launafólk gengur nú að sem sjálfsögðum réttindum var knúið fram með langri baráttu. Vinnudagurinn styttist vegna þess að fólk krafðist þess. Sama á við um orlof, veikindarétt og það öryggi sem kjarasamningar veita.

Þessi réttindi voru ekki gefin.

Það er full ástæða til að minnast þess á 110 ára afmæli Alþýðusambandsins. En saga hreyfingarinnar tryggir henni enga stöðu í framtíðinni. Hún verður að skipta launafólk máli hér og nú.

Mér sýnist þörfin fyrir öfluga verkalýðshreyfingu síst vera að minnka. Vinnumarkaðurinn verður sífellt flóknari og fyrirtæki starfa í auknum mæli þvert á landamæri. Nú bætist við tækni sem getur haft bein áhrif á það hvernig vinnu fólks er stjórnað og hvaða ákvarðanir eru teknar um störf þess.

Við þær aðstæður stendur einstaklingurinn veikt að vígi.

Þess vegna skiptir skipulagning launafólks áfram máli. Hreyfingin þarf að mæta nýjum aðstæðum af sama krafti og hún hefur áður sýnt. Viðfangsefnin eru önnur, en meginverkefnið er kunnuglegt: að tryggja launafólki raunveruleg áhrif á eigin kjör og sanngjarnan hlut af þeim verðmætum sem verða til.

Gervigreind og önnur ný tækni munu reyna á þetta á næstu árum. Þar þarf verkalýðshreyfingin að vera sterk og vita fyrir hvað hún stendur.

Hér á þessu þingi verða bornar upp nokkrar mikilvægar ályktanir sem varða framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu. Ég tel að þær geti gagnast okkur vel í því starfi sem bíður okkar.

Ég óska okkur öllum góðs og málefnalegs þings.

Ég lýsi 47. þing Alþýðusambands Íslands sett.

Tengdar fréttir

  • Upptaka: Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu

    47. þing Alþýðusambands Íslands hófst í dag og í tilefni…

    Ritstjórn

    14. okt 2026

  • 47. þing ASÍ hefst á miðvikudag með opnu málþingi

    Opin dagskrá við setningu þingsins, miðvikudaginn 14. október kl. 10–13…

    Ritstjórn

    12. okt 2026

  • Hlaðvarp ASÍ-UNG: Viðtöl við frambjóðendur til forseta ASÍ

    Kaffitíminn, sem er hlaðvarp ASÍ-UNG, hefur sett í loftið þáttaröð…

    Ritstjórn

    8. okt 2026