Upptaka: Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu

Höfundur

Ritstjórn

47. þing Alþýðusambands Íslands hófst í dag og í tilefni af því var haldið málþing opið öllum. Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu“. Þar verður horft fram á veginn og rætt hvernig verkalýðshreyfingin ætlar að mæta þeim áskorunum sem fylgja tækni- og loftslagsbreytingum.

Meðal ræðumanna voru Mariana Mazzucato, prófessor við University College London og einn þekktasti hagfræðingur samtímans, og Luc Triangle, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC), sem er málsvari um 200 milljóna launafólks um allan heim. Bæði fluttu þau fjarerindi. Rætt var um hvernig gervigreind mun breyta störfum og réttindum launafólks, hvort hún skapi ný tækifæri eða nýjan ójöfnuð, og hvaða möguleika fólk á Íslandi hefur til að bæta kjör sín milli kynslóða.


Upptaka af málþinginu er hér fyrir neðan:

Dagskrá málþingsins

Lúðrasveit verkalýðsins leikur við setningu. Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, flytur ávarp og setur þingið. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, ávarpar gesti.

Ávörp og erindi

  • Mariana Mazzucato, prófessor við University College London.
  • Huginn Freyr Þorsteinsson, vísindaheimspekingur 
  • Ragna Kemp Haraldsdóttir, dósent á félagsvísindasviði.

Pallborðsumræður – Guðmundur Steingrímsson stýrir

Framtíð vinnunnar, réttindi og færni á breyttum vinnumarkaði 
Huginn Freyr Þorsteinsson, vísindaheimspekingur
Hildur Bettý Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
Jóhanna Bárðardóttir, aðaltrúnaðarmaður hjá Rio Tinto
Ragna Kemp Haraldsdóttir, dósent við Háskóla Íslands

Kaffihlé

Ávörp og erindi

  • Emil Dagsson, hagfræðingur
  • Luc Triangle, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) — fjarerindi.

Pallborðsumræður – Guðmundur Steingrímsson stýrir

Jöfnuður, tækifæri og félagslegur hreyfanleiki 
Emil Dagsson, hagfræðingur
Sóllilja Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá Vörðu
Hafsteinn Einarsson, dósent í Háskóla Íslands

Tengdar fréttir

  • ASÍ varar við vaxandi valdi stórfyrirtækja og auðmanna

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) varar við þróun í alþjóðasamskiptum þar sem…

    Ritstjórn

  • Launafólk njóti ávinnings tæknibreytinga

    Gervigreind, sjálfvirknivæðing og önnur tækniþróun munu hafa mikil áhrif á…

    Ritstjórn

  • Félagslegum undirboðum verði mætt af fullri hörku

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) mun berjast af fullri hörku gegn félagslegum…

    Ritstjórn