Alþýðusamband Íslands (ASÍ) mun berjast af fullri hörku gegn félagslegum undirboðum og krefst þess að þeir sem hagnast á brotum gegn launafólki sæti ábyrgð. Félagsleg undirboð séu bein atlaga að afkomu, réttindum og starfsöryggi launafólks.
Þetta kemur fram í ályktun um góð störf, réttindi og öryggi launafólks á breyttum vinnumarkaði sem 47. þing ASÍ samþykkti í dag. Þar segir að félagsleg undirboð grafi undan kjarasamningum og þeirri vernd sem skipulagður vinnumarkaður eigi að tryggja.
Þingið hafnar því að tæknibreytingar og önnur umbreyting atvinnulífsins verði notuð til gerviverktöku, aukinnar útvistunar eða uppbrots ráðningarsambanda.
Í greinargerðinni segir að dæmi um gerviverktöku komi í vaxandi mæli inn á borð stéttarfélaga. Þróunin hafi verið sérstaklega áberandi innan gig-hagkerfisins, þar sem störfum er skipt niður í afmörkuð verkefni sem úthlutað er í gegnum stafræna vettvanga.
Þar segir jafnframt að þessi þróun hafi sérstaklega komið hart niður á hópum sem standa veikt á vinnumarkaði, meðal annars innflytjendum og ungu fólki.





