Launafólk njóti ávinnings tæknibreytinga

Höfundur

Ritstjórn

Gervigreind, sjálfvirknivæðing og önnur tækniþróun munu hafa mikil áhrif á störf og vinnumarkað. Alþýðusamband Íslands (ASÍ) krefst þess að launafólk fái fulla aðkomu að þeim umskiptum sem fram undan eru og að þau leiði ekki til óöryggis, afkomuskerðinga eða aukins ójafnaðar.

Þetta kemur fram í ályktun um færni, þekkingu og menntun á breyttum vinnumarkaði sem 47. þing ASÍ samþykkti í dag. Þar segir að launafólk eigi að njóta ávinnings framfara og því verði tryggður skýlaus réttur til þátttöku í þróun til nýrra starfa og breyttra atvinnuhátta.

Í greinargerð með ályktuninni er bent á að vinnumarkaðurinn standi frammi fyrir umfangsmiklum breytingum vegna hraðrar tækniþróunar, aukinnar notkunar gervigreindar og sjálfvirknivæðingar. Orkuskipti og loftslagsaðgerðir muni einnig hafa áhrif á þróun atvinnulífsins.

Þing ASÍ telur sí- og endurmenntun lykilþátt í að tryggja réttlát umskipti á vinnumarkaði. Sérstaklega þurfi að fylgjast náið með störfum sem miklar líkur eru á að hverfi eða breytist og bregðast við með sterku sí- og endurmenntunarkerfi.

Markmiðið er að tæknibreytingar auki ekki jaðarsetningu heldur styðji við þátttöku fólks á vinnumarkaði. Jafnt aðgengi að menntun og möguleikar til að þróa færni samhliða vinnu skipti þar miklu máli.

Ályktun 47. þings ASÍ um færni, þekkingu og menntun á breyttum vinnumarkaði má lesa í heild á þingvef ASÍ.

Tengdar fréttir

  • Ályktun miðstjórnar ASÍ um breytingar á Loftbrú

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands skorar á stjórnvöld að draga þegar í…

    Ritstjórn

  • ASÍ varar við vaxandi valdi stórfyrirtækja og auðmanna

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) varar við þróun í alþjóðasamskiptum þar sem…

    Ritstjórn

  • Félagslegum undirboðum verði mætt af fullri hörku

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) mun berjast af fullri hörku gegn félagslegum…

    Ritstjórn