Niðurstaða viðræðna um forsendur kjarasamninganna er mikið fagnaðarefni. Samningarnir halda og jafnframt hefur náðst fram mikilvæg niðurstaða í málum sem geta skilað launafólki verulegum lífskjarabótum á næstu árum.
Við eigum að leyfa okkur að fagna þeim árangri.
Verðlagsforsenda kjarasamninganna brast og sú reynsla verður ekki hunsuð. Launafólk tók á sig ábyrgð við gerð samninganna og sú leið getur aðeins gengið til lengri tíma ef ríki, sveitarfélög og atvinnulíf axla einnig sinn hluta. Það er lærdómur sem verður að hafa með sér inn í næstu samningsgerð.
En hitt skiptir ekki síður máli: þegar á reyndi tókst að setjast niður og vinna málið til lykta.
Mikilvægar umbætur
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 8. október vegna kjarasamninga á almennum vinnumarkaði er að finna fyrirheit um aðgerðir í ýmsum mikilvægum umbótamálum sem verkalýðshreyfingin hefur lengi barist fyrir. Þar má nefna aukin framlög til almenna íbúðakerfisins, verðtryggingu barnabóta, lögfestingu févítis, leigubremsu, áframhaldandi vinnu við stofnun örorkubótasjóðs og keðjuábyrgð í stórframkvæmdum.
Sum þessara mála fela í sér stór skref. Ef þau verða framkvæmd af þeim krafti sem fyrirheitin gefa tilefni til geta þau haft áhrif á lífskjör fólks langt út fyrir gildistíma þeirra kjarasamninga sem nú eru til umræðu.
Hið sama á við um sameiginlega yfirlýsingu Alþýðusambandsins, Samtaka atvinnulífsins, ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þar er að finna skuldbindingar sem eiga að stuðla að lægri verðbólgu og vöxtum og skipta verulegu máli fyrir framhaldið.
Traust verður ekki byggt á yfirlýsingum einum saman. Það byggist á því að staðið sé við það sem sagt er.
Niðurstaðan er til marks um hverju ná má fram þegar gengið er til viðræðna með það að markmiði að finna lausnir.
Ríkisstjórnin á hrós skilið fyrir ábyrga og vandaða framgöngu í þessum viðræðum og fyrir að hafa verið reiðubúin að taka á málum sem verkalýðshreyfingin hefur lagt mikla áherslu á.
Enginn er stærri en félagið
Árangurinn er hins vegar ekki verk eins manns eða fárra einstaklinga.
Það á almennt við um verkalýðsbaráttu. Enginn forystumaður í verkalýðshreyfingunni er stærri en félagið eða sambandið sem hann fer fyrir. Varanlegur árangur byggist á samstöðu innan hreyfingarinnar.
Þess vegna er hæpið að meta árangur verkalýðshreyfingarinnar fyrst og fremst út frá framgöngu eða sýnileika einstaklinga. Rétti mælikvarðinn er hvaða raunverulegu breytingar tekst að knýja fram í kjörum, réttindum og lífsskilyrðum fólks.
Bætt húsnæðisöryggi er árangur. Betri afkoma barnafjölskyldna er árangur. Sterkari réttindi launafólks eru árangur. Aðgerðir sem skapa forsendur fyrir minni verðbólgu og lægri vöxtum eru árangur.
Þar liggur hinn raunverulegi mælikvarði á hvernig til hefur tekist.
Þessi niðurstaða er afrakstur víðtæks samráðs innan verkalýðshreyfingarinnar. Formenn og forystufólk aðildarfélaganna hafa lagt sitt af mörkum og starfsfólk Alþýðusambandsins hefur lagt gríðarlega vinnu í greiningar, undirbúning, útfærslur og viðræður. Fyrir þá fagmennsku og seiglu vil ég færa þeim sérstakar þakkir.
Við eigum að gleðjast yfir sigrunum og segja frá þeim. Ekki til að hefja einstaklinga á stall heldur vegna þess að árangur skiptir máli. Hann sýnir félagsmönnum hvað sameiginlegt afl þeirra getur áorkað og minnir okkur á hvers vegna sterk verkalýðshreyfing skiptir máli.
Traust byggir á efndum
Nú þarf að tryggja að gefin fyrirheit verði að veruleika.
Takist það getur niðurstaðan orðið mikilvægari en það eitt að tryggja framhald núverandi kjarasamninga. Hún getur orðið grunnur að endurnýjuðu trausti og sýnt að þrátt fyrir harðan ágreining geta verkalýðshreyfingin, atvinnurekendur og stjórnvöld náð saman um aðgerðir sem bæta lífskjör og styrkja efnahagslegan stöðugleika.
Orðum verða að fylgja efndir.
Höfundur er forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ).





