ASÍ: Aukin skattbyrði og ekkert fé í vinnumarkaðsaðgerðir

Höfundur

Ritstjórn

Alþýðusamband Íslands (ASÍ) segir fyrirhugaðar breytingar á persónuafslætti og þrepamörkum þyngja skattbyrði alls launafólks, að öðru óbreyttu. Þá telur ASÍ hættu á að efnahagsforsendur fjárlagafrumvarpsins geti verið ofmetnar og gagnrýnir að engu fé sé ráðstafað í virkar vinnumarkaðsaðgerðir. Jafnframt segir sambandið grunnbætur atvinnuleysistrygginga dragast enn frekar aftur úr lægstu launum.

Þetta kemur fram í umsögn ASÍ um fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 og frumvarp um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga.

Í frumvarpinu er lagt til að viðmið um framleiðnivöxt við uppfærslu persónuafsláttar og þrepamarka verði lækkað úr 1% í 0,5% á næstu árum. Jafnframt verður miðað við framleiðni á hvern starfandi einstakling í stað framleiðni á vinnustund. Í umsögninni segir að vegna leiðréttingar fyrir meintu ofmati á framleiðni verði viðmiðið 0% árið 2027.

Breytingin leiðir til þess að persónuafsláttur og þrepamörk hækka minna en samkvæmt fyrra viðmiði, sem nemur 3,1 milljarði króna í auknar tekjur ríkissjóðs árið 2027.

ASÍ gerir athugasemdir við breytingarnar og segir meðal annars skorta gagnsæi um hvaða framleiðnimælikvarði liggi til grundvallar og rökstuðning fyrir breytingu á mælikvarðanum:

„Breytingarnar þyngja skattbyrði alls launafólks, að öðru óbreyttu. Áhrifin verða hlutfallslega mest hjá hinum tekjulægstu.“

ASÍ segir lækkun viðmiðsins varanlega og að áhrif hennar safnist upp yfir tíma. Breytingin feli því í raun í sér endurupptöku raunskattskriðs sem kerfisbreytingunum hafi verið ætlað að stöðva. Alþingi

Telur hættu á að forsendur geti verið ofmetnar

ASÍ telur jafnframt hættu á að efnahagsforsendur fjárlagafrumvarpsins geti verið ofmetnar. Frumvarpið byggir á spá um 1,8% hagvöxt árið 2027 en í nýrri hagspá ASÍ er gert ráð fyrir 1,1% hagvexti. Sambandið segir hraðar breytingar á efnahagshorfum og vaxandi atvinnuleysi vekja spurningar um hvort markmið um hallalausan ríkissjóð á næsta ári sé æskilegt eða hvort jafnvægi þurfi að nást yfir lengra tímabil.

Grunnbætur dragast lengra aftur úr

ASÍ bendir á að atvinnuleysi hafi aukist. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi mældist 6,8% í ágúst samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar, um einu prósentustigi meira en ári áður. Skráð atvinnuleysi hjá Vinnumálastofnun var 3,9% og skráðum atvinnuleitendum hafði fjölgað um hátt í 1.100 milli ára, í 8.700. Fjöldi atvinnulausra í ágúst hafði ekki verið meiri frá árinu 2021, þegar áhrifa heimsfaraldurs gætti á vinnumarkaði.

ASÍ segir að þrátt fyrir yfirlýsingar þar um hafi hvorki verið sett fjármagn né boðaðar útfærðar vinnumarkaðsaðgerðir til að stuðla að virkni á vinnumarkaði. Þá er gert ráð fyrir 4% hækkun grunnfjárhæða atvinnuleysisbóta í fjárlagafrumvarpinu. Taxtalaun hækka hins vegar um 4,9% um áramót. Grunnbæturnar eru þegar lægri en lægstu taxtar í gildandi kjarasamningum og segir ASÍ að þær muni því dragast enn frekar aftur úr lægstu launum á vinnumarkaði.

Umsögnina má nálgast hér.

Tengdar fréttir

  • Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk

    Niðurstaða viðræðna um forsendur kjarasamninganna er mikið fagnaðarefni. Samningarnir halda…

    Finnbjörn A. Hermannsson

    13. okt 2026

  • Hagspá ASÍ 2026 – 2028 komin út

    Útlit er fyrir hægagang í íslensku hagkerfi á næstu árum…

    Ritstjórn

    13. okt 2026

  • Ályktun miðstjórnar ASÍ vegna fjárlagafrumvarps 2027 

    Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) lýsir yfir þungum áhyggjum vegna fjárlagafrumvarps…

    Ritstjórn

    17. sep 2026