Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,54% milli mánaða í nóvember og ársverðbólga hjaðnaði úr 5,9% í 5,8%. Lækkun flugfargjalda til útlanda vegur þyngst, en húsnæðiskostnaður og verð á ökutækjum og eldsneyti hækka á móti.
Verðlag hefur hækkað hægar síðustu mánuði. Hækkun vísitölunnar síðustu þrjá mánuði jafngildir 1,2% á ársgrundvelli og síðustu sex mánuði 3,6%. Þessar tölur eru þó næmar fyrir árstíðabundnum sveiflum, meðal annars í flugfargjöldum.
Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 21,8% og lækkuðu vísitöluna um 0,59 prósentustig. Aðrir liðir vógu því samanlagt lítillega til hækkunar. Föt og skór lækkuðu þó um 3,4%, húsbúnaður og heimilistæki um 1% og matur og óáfengir drykkir um 0,25%.
Lækkun matvöruverðs kemur í kjölfar hækkana í haust. Verðlagseftirlit ASÍ hefur bent á að hækkanir á kjöti og mjólkurvörum hafi vegið á móti lækkunum á innfluttum vörum. Verðlagsnefnd búvara hefur ákveðið að halda heildsöluverði mjólkurvara óbreyttu í átta mánuði. Það ætti að draga úr þrýstingi til verðhækkana á þeim vörum sem ákvörðunin nær til, en tryggir ekki óbreytt verð í verslunum.
Húsnæði, vatn og orka vógu þyngst til hækkunar vísitölunnar, með 0,14 prósentustiga áhrif. Þar munar mest um reiknaða húsaleigu, en greidd húsaleiga hækkaði einnig um 0,42%.
Ársverðbólga án húsnæðis mælist 5,8%, hin sama og hjá heildarvísitölunni. Fyrir ári stóðu sömu stærðir í 2,7% og 3,7%. Verðhækkanir utan húsnæðisliðarins hafa því sótt í sig veðrið og þróun mælikvarðanna orðin samleitnari.
Eldsneytisverð hækkaði áfram eftir miklar hækkanir í september og október. Dísilolía hækkaði um 2,81% og bensín um 0,88%. Í nýlegri greiningu ASÍ kemur fram að lækkun heimsmarkaðsverðs á bensíni frá miðjum september hafi aðeins að litlu leyti skilað sér í innlendu verði. Þar er þó bent á að innlent verð hafi ekki fylgt fyrri hækkunum erlendis að fullu.
Lítil hjöðnun ársverðbólgu skýrist af samanburðinum við fyrra ár. Í nóvember 2025 lækkaði vísitalan um 0,48% og aðeins meiri lækkun kemur nú í hennar stað. Í desember fellur hins vegar 1,15% hækkun frá desember í fyrra úr samanburðinum. Verði hækkunin minni að þessu sinni mun ársverðbólga hjaðna áfram, jafnvel þótt verðlag hækki milli mánaða.





