Lækkun heimsmarkaðsverðs ekki enn skilað sér á bensíndælum

Höfundur

Ritstjórn

Heimsmarkaðsverð á bensíni hefur lækkað frá því um miðjan september, en innlent bensínverð án opinberra gjalda hefur enn ekki fylgt þeirri lækkun. Frá ársbyrjun hefur meðaltal lægsta bensínverðs hjá íslenskum smásölum hækkað um tæp 35%. Bensínverð án opinberra gjalda hefur á sama tíma hækkað um 40%. Til samanburðar hefur staðverð í New York-höfn, sem hér er mælikvarði á heimsmarkaðsverð, hækkað um 20% í íslenskum krónum.

Sveiflur á heimsmarkaði hafa þó verið mun meiri en lýsingin gefur til kynna. Verð hækkaði ört fram á vor og hafði nær tvöfaldast frá ársbyrjun þegar það náði hámarki í maí. Það lækkaði síðan fram á sumar, en hækkaði á ný fram um miðjan september. Innlent bensínverð án opinberra gjalda sveiflaðist mun minna á þeim tíma, eins og myndin ber með sér. Að undanförnu hefur þróunin hins vegar snúist við: heimsmarkaðsverð hefur lækkað verulega frá september, en innlent verð án opinberra gjalda hélt áfram að hækka fram í byrjun nóvember og hefur aðeins lækkað lítillega síðan.

Tímabundin lækkun virðisaukaskatts yfir sumarmánuðina setti jafnframt svip á verðþróun hér á landi. Lækkun verðs á dælu í maí fór saman við áframhaldandi hækkun verðs án opinberra gjalda. Þegar skattalækkunin gekk til baka í september hækkaði verð á dælu meira en verð án gjalda. Hluti hausthækkunar dæluverðs stafaði því af skattbreytingunni, en verð án opinberra gjalda hækkaði einnig.

Minni hækkanir framan af ári en viðsnúningur í haust

Samanburður við önnur Evrópulönd sýnir að bensínverð án opinberra gjalda hækkaði lengst af minna á Íslandi en víðast hvar í samanburðinum, í evrum talið. Undir haust breyttist sú mynd. Verð hér á landi hækkaði hratt í september og hélt áfram að hækka í október, þegar verð var tekið að lækka í flestum samanburðarlöndunum.

Þann 9. nóvember var bensínverð án opinberra gjalda á Íslandi tæpum 58% hærra í evrum talið en 5. janúar. Hækkunin nam tæpum 46% samkvæmt viðmiði fyrir Evrópusambandið. Meðal landanna á myndinni hafði verðið aðeins hækkað meira á Írlandi, eða um rúmlega 61%. Til samanburðar nam hækkunin um 23% í Hollandi og 35% í Finnlandi.

Munurinn er sérstaklega áberandi síðustu vikur tímabilsins. Frá lokum september til 9. nóvember lækkaði verð samkvæmt viðmiði Evrópusambandsins um 11%, en hækkaði um tæp 3% á Íslandi. Verð hér á landi stóð því enn nærri hámarki ársins þegar verðlækkanir voru komnar fram í öllum hinum löndunum á myndinni.

Við samanburðinn þarf að hafa í huga að íslenski mælikvarðinn byggist á útreikningum ASÍ á meðaltali lægsta verðs hvers smásala, að frádregnum opinberum gjöldum og umreiknuðu í evrur. Ekki er því tryggt að úrtak og aðferð við meðaltalsútreikning séu að fullu sambærileg milli landa. Samanburðurinn er jafnframt í evrum og gengisbreytingar hafa því áhrif á niðurstöðuna. Hækkunin um 58% á Íslandi er þannig á öðrum gjaldmiðilsgrunni en 40% hækkunin í krónum sem nefnd er hér að framan. Vísitölurnar sýna verðbreytingar frá sameiginlegum grunndegi, en ekki hvar bensín er dýrast.

Þróunin í samhengi við fyrri greiningar ASÍ

ASÍ hefur áður fjallað um hvernig breytingar á heimsmarkaðsverði og gengi skila sér á dælum innanlands. Í ágúst 2025 hafði heimsmarkaðsverð bensíns í krónum lækkað um tæp 14% frá ársbyrjun, en mánaðarmeðaltal lægsta verðs innanlands aðeins um 2,5%. Í greiningu frá september sama ár, sem náði yfir tímabilið 2016–2025, komu jafnframt fram vísbendingar um að innlent eldsneytisverð án opinberra gjalda brygðist hraðar og meira við hækkunum heimsmarkaðsverðs en lækkunum.

Yfirferðin nú sýnir að lækkun heimsmarkaðsverðs síðustu vikna hefur aðeins að litlu leyti komið fram í innlendu bensínverði. Á móti kemur að innlent verð hækkaði hlutfallslega minna þegar heimsmarkaðsverð hækkaði ört í vor og fylgdi ekki hækkunum þess í sumar. Hluti hausthækkunarinnar hér á landi kann því að endurspegla síðbúna aðlögun að erlendum aðstæðum. Samanburðurinn gefur tilefni til að fylgja fyrri greiningum eftir, en nægir ekki einn og sér til að meta hvort munur sé á hraða og umfangi aðlögunar að erlendri þróun.

Gögn og aðferð

Íslensk bensínverð byggjast á verðskráningum Gasvaktarinnar. ASÍ reiknar meðaltal lægsta verðs hvers smásala og dregur opinber gjöld frá samkvæmt gjaldaskrá RSK. Erlenda heimsmarkaðsviðmiðið er staðverð bensíns í New York-höfn samkvæmt gögnum Orkustofnunar Bandaríkjanna (EIA), sótt í FRED-gagnagrunninn, röð DGASNYH. Verðgögn fyrir Evrópulöndin eru fengin úr Weekly Oil Bulletin framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og miðast við 95 oktana bensín án skatta. Við gjaldmiðlaumreikning er notast við gengiskráningu frá Seðlabanka Íslands. Útreikningar og úrvinnsla eru á vegum ASÍ.

Tengdar fréttir

  • Mikill verðmunur á bensíni innan sömu félaga

    Munurinn á lægsta og algengasta bensínverði Atlantsolíu, N1, Orkunnar og…

    Ritstjórn

  • Allt að 66% verðmunur á bökunarvörum

    Verð á sykri, hveiti og nokkrum súkkulaðivörum hefur lækkað milli…

    Ritstjórn

  • Ólík verðþróun á innlendum og innfluttum vörum

    Í september boðuðu aðilar á smásölumarkaði verðlækkanir og verðfrystingar sem…

    Ritstjórn