Um 60% telja áhrif innflytjenda jákvæð

Höfundur

Ritstjórn

Um 60% þjóðarinnar telja áhrif innflytjenda á íslenskt efnahagslíf vera jákvæð.

Þetta kemur fram í nýrri þjóðmálakönnun sem Gallup framkvæmdi fyrir Alþýðusamband Íslands (ASÍ).

Spurt var: Telur þú að innflytjendur hafi jákvæð eða neikvæð áhrif á íslenskt efnahagslíf?

Alls kváðust 21% aðspurða telja áhrifin mjög jákvæð og 39% sögðu þau frekar jákvæð. Um 18% töldu þau frekar (12%) eða mjög neikvæð (6%).

Þá tóku 22% ekki beina afstöðu.

Kjósendur Miðflokksins og Flokks fólksins eru líklegastir til að telja áhrif innflytjenda neikvæð. Í könnunni lýsa 39% kjósenda Flokks fólksins og Miðflokksins þeirri afstöðu sinni að áhrif innflytjenda séu neikvæð. Þá eru 24% kjósenda Sjálfstæðisflokksins sömu skoðunar.

Könnunin var gerð 13.-21. Nóvember 2024.

Úrtak var 1.697 manns af öllu landinu, 18 ára og eldri, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Söguleg viljayfirlýsing um að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði

    Félags- og húsnæðismálaráðherra, fulltrúi dómsmálaráðherra og forystufólk Alþýðusambands Íslands (ASÍ),…

    Ritstjórn

    8. ágú 2026

  • „Við virðumst einhvern veginn ekki hafa lært nógu mikið af

    Sara Dögg Svanhildardóttir, sviðsstjóri fræðslu- og upplýsingasviðs hjá ASÍ, mætti…

    Ritstjórn

    7. ágú 2026