Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri borgara úr 1.100–1.190 krónum í 1.900 krónur frá 1. september. Hækkunin nemur allt að 73% í einu stökki.
Matarþjónusta við eldra fólk er ekki venjuleg söluvara. Hún er mikilvæg félagsleg þjónusta sem stuðlar að því að fólk geti búið lengur heima, fengið reglulega næringarríka máltíð og tekið þátt í samfélaginu. Gjaldtaka fyrir slíka grunnþjónustu verður að taka mið af greiðslugetu þeirra sem hana þurfa en ekki aðeins út frá kostnaðarverði þjónustunnar. Rekstrarvandan á ekki að leysa með því að velta kostnaðinum yfir á fólk sem hefur takmarkaða möguleika á að auka tekjur sínar.
Fyrir einstakling sem kaupir 20 máltíðir á mánuði hækkar reikningurinn úr 22–23.800 krónum í 38.000 krónur. Það er allt að 16.000 króna aukinn útgjaldaliður á hverjum mánuði, sem á ársgrundvelli nemur um 170 – 192 þúsund krónur. Þrátt fyrir afslátt fyrir einstaklinga undir tekjuviðmiði er hækkunin rífleg, eða um 26%.
Ákvörðunin skýtur jafnframt skökku við á tímum þegar heimilin hafa þegar tekið á sig miklar verðhækkanir. ASÍ hefur ítrekað bent á miklar hækkanir á matvöru og öðrum nauðsynjum og að hækkandi gjaldskrár hins opinbera leggist beint á föst útgjöld heimilanna.
Verkalýðshreyfingin gekk til hóflegra kjarasamninga árið 2024 með það að markmiði að stuðla að stöðugleika, lægri verðbólgu og lægri vöxtum. Mikilvægur hluti þeirrar vegferðar var loforð ríkis og sveitarfélaga um að halda aftur af gjaldskrárhækkunum. Þessi loforð hafa verið marg svikin og ASÍ ítrekað gagnrýnt ríki og sveitarfélög fyrir að axla ekki sína ábyrgð á því markmið samninganna nái fram að ganga. Það er ábyrgðaleysi af stærsta sveitarfélagi landsins við þær aðstæður sem við blasa á vinnumarkaði þar sem forsendur kjarasamninga eru hættu að hækka gjaldskrár fyrir viðkvæma velferðarþjónustu. Þessi ákvörðun ýtir enn undir verðbólgu og sendir út alröng skilaboð.
Góð og aðgengileg matarþjónusta við eldra fólk er fjárfesting í velferð, heilsu og sjálfstæði. Sparnaður sem leiðir til þess að fólk sleppir máltíðum eða einangrast meira getur hæglega orðið samfélaginu dýrari þegar fram líða stundir.
ASÍ skorar því á Reykjavíkurborg að endurskoða ákvörðunina áður en ný gjaldskrá tekur gildi 1. september.





