Prís ódýrast í nær allri verðkönnuninni

Höfundur

Ritstjórn

Lægsta verðið á matvöru var að finna í Prís samkvæmt úttekt Verðlagseftirlits ASÍ sem framkvæmd var dagana 10. til 14. ágúst. Þegar verð voru borin saman í lágvöruverslununum: Bónus, Krónunni, Nettó og Prís var lægsta verðið oftast að finna í Prís.

Rúmlega 2.000 krónum munaði á verði vörukörfu með 25 algengum neysluvörum eftir því í hvaða verslun er verslað. Verð í Prís var einnig lægst í nær öllum tilfellum þegar borin voru saman verð á 248 vörum í verslununum fjórum.

2 þúsund króna munur á vörukörfunni

Prís kemur best út úr verðsamanburði á 25 algengum neysluvörum og var með lægsta verðið á öllum vörum sem bornar voru saman. Nettó var hins vegar með hæsta verðið í langflestum tilfellum, eða 24 af 25. Krónan var með hæsta verðið á einni vöru, Emmessís litapinnum.

Einstaka vörur voru umtalsvert ódýrari í Prís en öðrum verslunum, sem dæmi má nefna að heilt 770gr Myllu heimilisbrauð er 230 kr. ódýrara en í Bónus og Brauðostur 26% 460gr var 89 kr. Ódýrari í Prís en í Bónus.

Vörukarfan kostaði 17.433 krónur í Prís en sama karfa kostaði 18.396 krónur í Bónus, 18.767 krónur í Krónunni og 19.522 krónur í Nettó. Það þýðir að neytandi greiddi 963 krónum meira í Bónus en í Prís og 1.334 krónum meira í krónunni eða á bilinu 5,5% til 12% meira en í ódýrustu versluninni.

Ekki bara vörukarfan sem segir þessa sögu

Þegar stærri verðsamanburður er skoðaður verður munurinn á verslununum enn skýrari. Kannað var verð á 248 sömu vörunum í öllum fjórum verslunum. Af þeim var Prís ódýrast í 246 tilfellum.

Prís var með lægra verð en Krónan og Nettó á öllum 248 vörunum í samanburðinum. Bónus náði að vera ódýrara en Prís á tveimur vörum en það var á hálfri djöflatertu frá KJ þar sem hún kostaði 959 kr. í Bónus en 985 kr. í Prís og á Vanillu skyr skvísu frá Ísey þar sem hún kostaði 211 kr. í Bónus en 273 kr. í Prís.

Myndin sem gögnin draga upp er því óvenju skýr. Þetta snýst ekki aðeins um að ein tiltekin vörukarfa hafi komið hagstætt út hjá Prís eða að nokkrar vörur á tilboði hafi skekkt niðurstöðuna. Lægra verð Prís sést þvert á alla vöruflokka sem hægt var að bera saman milli verslananna.

Á hinum enda samanburðarins er Nettó. Af þessum 248 vörum var Nettó með hæsta verðið í 244 tilfellum. Það er um 98% þeirra vara sem bornar voru saman.

Tugir króna verða fljótt að þúsundköllum

Munurinn á verði einstakra vara þarf ekki að virðast mikill við fyrstu sýn. Miðað við allar 248 vörurnar var verð í Bónus að meðaltali um 29 krónum hærra en í Prís og í Krónunni um 34 krónum hærra. Í Nettó var munurinn að meðaltali um 63 krónur á hverja vöru.

Þegar margar vörur fara í innkaupakörfuna safnast þessar krónur hratt saman líkt og sést á 25 vara körfunni. Á flestum heimilum eru slík innkaup gerð reglulega og getur verðmunurinn því skipt heimilin verulegu máli. Sé miðað við sambærilegan rúmlega 2.000 króna mun á vikulegum innkaupum er um að ræða meira en 100 þúsund krónur á ári. Það er þó aðeins einfalt dæmi til að setja stærðargráðuna í samhengi enda eru innkaup heimila ólík og verð breytast.

Bónus og Krónan mun nær hvort öðru

Bónus og Krónan fylgjast töluvert betur að í samanburðinum og oftast er munurinn 1 kr. Aðeins 371 króna munur er á 25 vara körfunni í verslununum tveimur. Bónus er þar um 2% ódýrara en Krónan.

Bilið frá þessum tveimur verslunum niður í Prís er hins vegar meira. Vörukarfan er um 5,5% dýrari í Bónus en í Prís og um 7,7% dýrari í Krónunni. Nettó sker sig síðan enn frekar úr, þar sem karfan kostar um 12% meira en í Prís.

Sama mynstur sést þegar stærra vörusafnið er skoðað. Ef verð allra 248 varanna eru lögð saman – sem er fyrst og fremst mælikvarði til samanburðar en ekki raunhæf innkaupakarfa – er samanlagt verð í Bónus um 4,9% hærra en í Prís og í Krónunni um 5,6% hærra. Í Nettó er það um 10,5% hærra.

Mikil breyting á vöruúrvali í Bónus og Hagkaupum

Vöruúrval í Bónus og Hagkaupum hefur tekið miklum breytingum undanfarin misseri. Verslanirnar hafa hafið sölu á vörum frá Salling. Neytendum getur reynst erfitt að átta sig á áhrifum slíkra breytinga, einkum ef vörurnar eru ekki fáanlegar í öðrum verslunum. Hvort áhrifin leiði til hækkunar eða lækkunar á verði ræðst af þeim vörum sem borið er saman við og því vöruúrvali sem verður eftir breytingarnar.

Neytendur sem verslað hafa ódýrasta kostinn muun því standa frammi fyrir auknu úrvali á vörum á hærri verðum, sem og neytendur sem eru vanir að kaupa dýrari vörur í hærri gæðaflokki munu hafa meira úrval að velja úr á lægri verðum. Sem dæmi má nefna Lasagne Kit frá Knorr sem kostar 592 kr, en sambærilegt Lasagne kit frá Salling kostar 459 kr og einnig Lífrænt penne pasta frá Salling 500gr kostar 245 kr, en sama pasta frá Garofalo kostar 319 kr. Á hinn bóginn má nefna dæmi um vörur frá Salling sem eru dýrari þá má sjá að bæði grænt og rautt pestó frá euroshopper kosta 209 kr.  en sömu vörur frá Salling kosta 279 kr. og 298 kr.

ASÍ mun áfram fylgjast grannt með þróun á vöruverði og vöruúrvali í þessum verslunum.

Verðmunurinn skiptir máli fyrir heimilin

Niðurstöðurnar undirstrika hversu miklu máli verðlagning dagvöru getur skipt fyrir fjárhag heimilanna. Þegar verðmunur upp á nokkra tugi króna á hverri vöru endurtekur sig yfir heila innkaupakörfu verður hann fljótt að fjárhæðum sem munar um.

Það sem vekur þó mesta athygli í þessum samanburði er ekki einungis stærð verðmunarins heldur hversu kerfisbundinn hann er. Prís er ódýrast í 246 af 248 samanburðarhæfum vörum en Nettó dýrast í 244 þeirra.

Neytendur hafa því ríka ástæðu til að horfa ekki aðeins á einstök tilboð eða ímynd verslana sem ódýrra eða dýrra, heldur bera saman raunverulegt verð.

Um könnunina

Verðlagseftirlitið kannaði verð í verslunum dagana 10.-19. Ágúst. Verð voru könnuð í Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaupum, Krambúðinni,  Fjarðarkaupum, Prís og SPAR. Í samantektinni að ofan eru verð borin saman í ódýrustu verslununum, þeim Bónus, Krónunni, Nettó og Prís. Öll verð ásamt nýjustu verðum geta neytendur nálgast í Nappinu eða á verdlagseftirlit.is

Í verðsamanburði er miðað við hilluverð sem neytandi hefur upplýsingar um í versluninni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/tilboðsverð af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Tengdar fréttir

  • Lækkun olíuverðs ekki skilað sér í smásöluverð 

    Verð á olíu hefur farið lækkandi á heimsmörkuðum undanfarna daga…

    Ritstjórn

    26. jún 2026

  • Verð á súkkulaði hækkað um tæpan þriðjung á tveimur árum

    Verð á vinsælum súkkulaði- og sælgætisvörum hefur hækkað um tæp…

    Ritstjórn

    26. jún 2026

  • Sumargrillið hækkar í verði

    Verð á matvöru hækkaði um 0,3% milli mánaða samkvæmt dagvöruvísitölu…

    Ritstjórn

    19. jún 2026