Tilnefningar til Kuðungsins

Höfundur

Ritstjórn

Vinnur þú á vinnustað sem er til fyrirmyndar í umhverfismálum? Hefur fyrirtækið/stofnunin sem þú starfar hjá komið að nýsköpun í umhverfismálum eða ráðist í viðamiklar aðgerðir til að draga úr umhverfisfótspori?  

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2023. Tilnefningarflokkarnir eru tveir, stærri og minni fyrirtæki eða stofnanir. 

Tillögur skulu berast umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu eigi síðar en 11. mars nk. merktar „Kuðungurinn“ á netfangið urn@urn.is eða með pósti í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Borgartúni 26, 105 Reykjavík. 

Í fyrra hlutu fyrirtækin Jáverk og Gefn viðurkenningu fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á árinu 2022. 

Nánari upplýsingar um tilnefningar má nálgast á vefsíðu Stjórnarráðsins: Stjórnarráðið | Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2023 (stjornarradid.is) 

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026