Ályktun miðstjórnar ASÍ um breytingar á Loftbrú

Höfundur

Ritstjórn

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands skorar á stjórnvöld að draga þegar í stað til baka illa ígrunduð áform um breytingar á Loftbrú og efna til raunverulegs samráðs við íbúa, sveitarfélög og hagsmunasamtök á landsbyggðinni um framtíð kerfisins.

Loftbrú var komið á til að jafna aðstöðumun eftir búsetu og bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu. Innanlandsflug er fyrir stóran hluta landsins ekki munaður heldur mikilvægur hluti almenningssamgangna og forsenda aðgengis að heilbrigðisþjónustu, námi, atvinnu, fjölskyldu og félagslegri þátttöku. Þessa þjónustu ber stjórnvöldum að tryggja.

Breyting úr hlutfallslegri niðurgreiðslu í fasta krónutölu færir aukna áhættu vegna hárra og hækkandi flugfargjalda yfir á farþegana sjálfa. Þeir sem þurfa að ferðast með skömmum fyrirvara, þegar fargjöld eru gjarnan hæst, verða sérstaklega berskjalda. Það gengur gegn grundvallarmarkmiði Loftbrúar.

Miðstjórn ASÍ telur boðaða hækkun á föstum styrk ekki leysa þann grundvallarvanda. Á meðan stuðningurinn er ákveðin krónutala en ekki hlutfall af raunverulegu fargjaldi minnkar hlutfallslegur stuðningur eftir því sem flugið verður dýrara. Þeir sem standa frammi fyrir hæstu fargjöldunum bera þannig mestan viðbótarkostnað.

Miðstjórn tekur undir þá víðtæku gagnrýni sem komið hefur fram frá sveitarfélögum og landshlutasamtökum á undanförnum dögum. Jafnframt skal minnt á að Loftbrú er viðbragð við þeirri pólitísku ákvörðun að færa þjónustu markvisst úr heimabyggð. Ábyrgðin er því augljós ekki síður en vandinn sem hún hefur skapað.

Fyrirsjáanleika í ríkisfjármálum verður ekki náð með því að gera ferðakostnað og aðgengi að nauðsynlegri þjónustu ófyrirsjáanlegra fyrir launafólk og fjölskyldur þess. Miðstjórn telur undrunarefni að stjórnvöld skuli ekki leita eftir samningi við flugrekendur um kaup á tilteknum fjölda farmiða á föstu verði t.d. á ári hverju. Verður ekki annað séð en að títtnefndan „fyrirsjáanleika“ megi tryggja með því móti til viðbótar við þá skyldu ríkisvaldsins að halda uppi samgöngum í landinu og fara vel með almannafé.

Miðstjórn ASÍ hvetur því stjórnvöld til að falla frá boðuðum breytingum og hefja þegar í stað vinnu, í víðtæku samráði, við að byggja upp kerfi sem í raun tryggir landsmönnum fjárhagslega viðráðanlegt aðgengi að samgöngum og miðlægri þjónustu.

Tengdar fréttir

  • ASÍ varar við vaxandi valdi stórfyrirtækja og auðmanna

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) varar við þróun í alþjóðasamskiptum þar sem…

    Ritstjórn

  • Launafólk njóti ávinnings tæknibreytinga

    Gervigreind, sjálfvirknivæðing og önnur tækniþróun munu hafa mikil áhrif á…

    Ritstjórn

  • Félagslegum undirboðum verði mætt af fullri hörku

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) mun berjast af fullri hörku gegn félagslegum…

    Ritstjórn