Mikill verðmunur getur verið á umfelgun og dekkjaskiptum hjá dekkjaverkstæðum samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ þar sem borin voru saman verð hjá 29 fyrirtækjum á tímabilinu 13.–26. október. Í samanburðinum voru verð á umfelgun og dekkjaskiptum skoðuð fyrir ólíkar felgu- og bílastærðir. Hér að neðan má sjá dæmi um verðmun á dekkjaskiptum. Neytendum er þó bent á að skoða heildarsamanburðinn sem finna má í töflu hér að neðan.
Allt að 22.475 krónum getur munað á verði umfelgunar fólksbíls í samanburði fyrir 16–22 tommu felgur. Mesti munurinn milli fyrirtækja er á umfelgun 22 tommu dekkja, þar sem verðið er frá 13.900 krónum upp í 36.375 krónur, eða 161,7% munur. Fyrir 16 tommu felgur getur munað 6.000 krónum, eða 54,6%.
Þúsundir króna skilja að verð á sömu felgustærð fyrir fólksbíla
Samanburður á umfelgun miðast við sömu felgustærð og bílaflokk en misjafnt er í verðskrám hvort þær miði einungis við felgustærð eða hvort tekið sé tillit til tegundar bíls, þ.e. fólksbíls eða jepplings. Jafnvægisstilling er innifalin í öllum tilvikum. Víða er tekið fram að lágprófíldekk geti borið aukagjald.
Lægsta verðið fyrir smábíl (12–13“ felgustærð) var 8.990 kr. hjá Bílaverkstæðinu No22 í Reykjavík en hæst var verðið hjá bílaþjónustu N1. Tekið skal fram að verðið hjá N1 miðast við 10–16 tommur.
Lægsta verð á umfelgun á 14–16 tommu felgum er 10.990 krónur hjá Fastparts í Hafnarfirði en það hæsta 16.990 krónur hjá N1.
Fyrir 17 tommu felgur var lægsta verðið 12.900 krónur hjá No22 en það hæsta 19.990 krónur hjá N1, Betridekk og Kletti.
Uppgefið verð hjá Pitstop Selfossi er 13.900 krónur fyrir umfelgun fólksbíla óháð dekkjarstærð og er því lægst í samanburðinum við 18–22 tommur. Fyrir 20 tommu felgur er hæsta verðið 31.760 krónur hjá Dekkjahöllinni. Við 22 tommur er það 36.375 krónur hjá MAX1 Bílavaktinni. Samanburðurinn miðast við þessa stærðarflokkun í verðskránni.
Fyrir heimili með tvo fólksbíla á 16 tommu felgum nemur munurinn á hæsta og lægsta verði 12.000 krónum í einni umferð. Ef báðir bílar fara tvisvar í umfelgun á sama verði verður munurinn 24.000 krónur.
Talsverður munur hjá jepplingum og jeppum
Umfelgun jepplings eða óbreytts jeppa á 16 tommu felgum er lægst skráð á 10.990 krónur hjá Fastparts og hæst á 19.990 krónur hjá Betridekk. Munurinn er 9.000 krónur, eða 81,9%.
Fyrir 20 tommu felgur er verðið frá 15.490 krónum hjá MN Bílaverkstæði upp í 31.760 krónur hjá Dekkjahöllinni, eða 105,0% munur.
Fyrir breyttan jeppa á 35 tommu dekkjum er umfelgun lægst skráð á 20.490 krónur hjá MN Bílaverkstæði og hæst á 29.990 krónur hjá N1 og Kletti í sama samanburðarhópi. Það er 9.500 króna munur, eða 46,4%.
Mikill verðmunur á dekkjaskiptum
Þegar sumar- og vetrardekk eru á sérfelgum er verð á dekkjaskiptum með jafnvægisstillingu á bilinu 9.990–12.490 krónur fyrir fólksbíla á 16 tommu felgum og 10.490–14.490 krónur á 17 tommu felgum. Verðmunurinn í síðarnefnda flokknum er 38%.
Lægri verð voru einnig skráð, en þar kom ekki fram hvort jafnvægisstilling væri innifalin. Því er ekki tryggt að sama þjónusta sé borin saman.
Hjá BL Hraðþjónustu, MN Bílaverkstæði og N1 eru hjólaskipti 5.000–7.000 krónum ódýrari en umfelgun fyrir þessar felgustærðir. Jafnvægisstilling er innifalin í báðum tilvikum. Sé skipt tvisvar á ári á þessum verðum nemur munurinn 10.000–14.000 krónum á bíl. Við mat á hagkvæmni tveggja felguganga þarf einnig að reikna með kaupum á aukafelgum, geymslu og viðhaldi.
Afslættir og aukagjöld geta breytt lokaverðinu
Í samanburðinum eru verð án þess að skilyrtir afslættir séu dregnir frá. Dekkjahöllin tilgreinir 12% afslátt ef keypt eru dekk og MAX1 15% afslátt af umfelgun ef keypt eru fjögur dekk, hjá N1 fá korthafar t.d. afslátt og safna punktum.
Neytendur þurfa jafnframt að gæta að því hvort verð miðast við ál- eða stálfelgur og hvort aukagjöld gildi um lágprófíldekk eða stærri bíla.
Við bókun er því gagnlegt að gefa upp bílaflokk, rétta stærð hjóla og gerð felgna og fá staðfest heildarverð fyrir þá þjónustu sem þarf.
Vöktun á verði í höndum neytenda
Með greiðara aðgengi að verðskrám má sjá að neytendur eru orðnir virkari á vaktinni. Ástæða er til að benda á að neytendur geta nálgast lifandi samanburð á vefsíðunni dekkjaskiptin.is þar sem hægt er að bera saman með einföldum hætti verðskrár fyrir umfelgun og dekkjaskipti.
Um samanburðinn
Gögnin sýna verð eins og þau voru skráð 13.–26. október 2026. Ekki er lagt mat á gæði þjónustu. Greiningin byggist á verðskrám dekkjaverkstæða sem teknar voru saman 13.–26. október 2026. Í henni eru yfir 1.007 verð frá 29 fyrirtækjum á tíu stöðum yfir allt land.
Hægt er að nálgast töflu með öllum verðum hér.





