Enginn norrænn viðbúnaður án launafólks

Höfundur

Ritstjórn

Helsinki, 23. september 2026

Fimmta þing Norræna verkalýðssambandsins (NFS), sem sameinar norrænu verkalýðshreyfinguna og kom saman í Helsinki dagana 22.–23. september 2026, hvetur ríkisstjórnir Norðurlandanna og Norrænu ráðherranefndina til að tryggja að aðilar vinnumarkaðarins gegni skýru og skipulegu hlutverki í norrænu samstarfi um viðbúnað og getu til að tryggja nauðsynleg aðföng og þjónustu.

Í sameiginlegri yfirlýsingu hafa Norðurlöndin komið sér saman um að efla samstarf um viðbúnað til að tryggja nauðsynleg aðföng. Því fögnum við. En þar er augljós annmarki. Launafólk og samtök þess hafa ekki skýran sess í áframhaldandi starfi. Þegar kreppa skellur á er það fólkið á vinnustöðunum sem heldur samfélaginu gangandi. Það er launafólk sem tryggir að heilbrigðisþjónustan virki, að vörur komist á áfangastað, að orka berist til heimila okkar, að stafrænir innviðir virki og að hægt sé að viðhalda mikilvægri samfélagsstarfsemi.

Samt hefur í norrænu samstarfi hingað til ekki tekist að nýta til fulls einn helsta styrk Norðurlandanna: vinnumarkaðslíkan okkar. Við vitum að aðkoma aðila vinnumarkaðarins er með ólíkum hætti og mismikil á Norðurlöndunum. En þegar Norðurlöndin taka höndum saman vill sjónarhorn launafólks alltof oft glatast á leiðinni. Atvinnulífið fær sjálfsagðan sess í samtalinu en þátttaka launafólks verður í besta falli að einhverju sem hugað er að eftir á og í versta falli alls ekki.

Norræna líkanið byggist á sterkum og vel skipulögðum samtökum aðila vinnumarkaðarins sem axla ábyrgð ásamt stjórnvöldum og finna lausnir á sameiginlegum áskorunum. Það hefur stuðlað að því trausti, öryggi og þeirri aðlögunarhæfni sem hefur gert samfélög okkar sterk. Þegar Norðurlöndin búa sig nú undir kreppur og, ef til vill, stríð, ætti að vera sjálfsagt að nýta þennan styrk.

Þess vegna er eftirtektarvert að samtök launafólks skuli ekki fá sjálfsagðan sess við þróun norræns samstarfs um viðbúnað. Í yfirlýsingunni er kveðið á um að viðbúnaðurinn skuli ná til alls samfélagsins og um leið lögð áhersla á þörfina fyrir samstarf hins opinbera og atvinnulífsins. Allt samfélagið á að taka þátt en þegar sætunum við borðið er úthlutað vantar launafólkið.

Þetta snýst ekki aðeins um fyrirsvar. Skilvirkur viðbúnaður krefst þekkingar á því hvernig atvinnulífið virkar í raun. Tryggja þarf viðeigandi hæfni og mönnun. Ábyrgðarskipting verður að vera skýr. Vinnuumhverfi og starfskjör verða að vera viðunandi, jafnvel við erfiðar aðstæður. Ekki er hægt að leysa þessi mál eftir að kreppa skellur á. Launafólk verður að vera hluti af viðbúnaðinum frá upphafi.

Norrænu verkalýðssamtökin eru fulltrúar milljóna launafólks og búa yfir þekkingu á þeim vinnustöðum og þeirri starfsemi sem eiga að halda samfélögum okkar gangandi. Sé sú þekking ekki nýtt til fulls veikist sameiginlegur viðbúnaður okkar.

Þess vegna hvetur hin sameinaða verkalýðshreyfing Norðurlandanna, ríkisstjórnir Norðurlandanna og Norrænu ráðherranefndina til að tryggja að aðilar vinnumarkaðarins gegni skýru og skipulegu hlutverki í áframhaldandi norrænu samstarfi um viðbúnað og getu til að tryggja nauðsynleg aðföng og þjónustu. Þegar stefna er mótuð, forgangsröðun ákveðin og samstarfið þróað eiga samtök launafólks að eiga sjálfsagðan sess við borðið. Norðurlöndin þurfa ekki að finna upp nýtt líkan um hvernig við leysum saman stórar samfélagslegar áskoranir. Við höfum þegar slíkt líkan. Nú er kominn tími til að nýta það, einnig á sameiginlegum norrænum vettvangi.

Samþykkt á þingi NFS – Norræna verkalýðsþinginu – í Helsinki 23. september 2026.

Tengdar fréttir

  • Verðbólga yfir forsendum kjarasamninga

    Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2% í ágúst frá fyrri mánuði…

    Ritstjórn

    27. ágú 2026

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026