Miðstjórn ASÍ fordæmir hernað Bandaríkjamanna og Ísraela gegn Írönum

Höfundur

Ritstjórn

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum 4. mars 2026:

„Miðstjórn Alþýðusambands Íslands (ASÍ) fordæmir ólögmætt árásarstríð Bandaríkjamanna og Ísraela gegn Írönum. Stórfelldar sprengjuárásir og hernaður þessara ríkja, sem þegar hafa kostað mikinn fjölda óbreyttra borgara lífið,  brjóta í bága við alþjóðalög og eru ólíðandi með öllu.

Miðstjórn styður heilshugar ákall Alþjóðasambands verkalýðsfélaga (ITUC) um að hernaðaraðgerðum í Mið-Austurlöndum verði hætt þegar í stað og að teknar verði upp á ný viðræður um friðsamlega lausn deilumála.

Stríð eru aldrei í þágu vinnandi fólks. Almenningur færir jafnan stærstu fórnirnar og ber byrðarnar þegar vopnin loksins þagna og byggja þarf upp samfélag á ný.

Launafólk vill frið, lýðræði og mannsæmandi störf. 

Miðstjórn ASÍ minnir á að Íranska þjóðin á skýlausan rétt til að móta eigin framtíð og ákveða hvernig stjórn lands hennar er háttað, með friðsamlegum hætti og án utanaðkomandi afskipta.”  

Tengdar fréttir

  • ASÍ varar við vaxandi valdi stórfyrirtækja og auðmanna

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) varar við þróun í alþjóðasamskiptum þar sem…

    Ritstjórn

    19. okt 2026

  • Launafólk njóti ávinnings tæknibreytinga

    Gervigreind, sjálfvirknivæðing og önnur tækniþróun munu hafa mikil áhrif á…

    Ritstjórn

    18. okt 2026

  • Félagslegum undirboðum verði mætt af fullri hörku

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) mun berjast af fullri hörku gegn félagslegum…

    Ritstjórn

    17. okt 2026