SGS ályktar – Sveitarfélögin fá falleinkun vegna styttingar vinnuvikunnar í dagvinnu

Höfundur

Ritstjórn

Verkalýðshreyfingin hefur barist fyrir því í áratugi að vinnuvikan verði stytt hjá launafólki. Í kjarasamningum við ríki og sveitarfélög sem undirritaðir voru 2020 voru stigin þýðingarmikil skref til styttingar vinnuvikunnar.

Innleiðing þeirra breytinga í dagvinnu sem tóku gildi 1. janúar 2021 á nú að vera komin til framkvæmda. Í þeirri vinnu skiptir öllu máli að opinberir vinnuveitendur standi við kjarasamninginn og tryggi launafólki þá styttingu sem um var samið.

Formannafundur SGS haldinn í Mývatnssveit, 20.–21 maí 2021, lýsir yfir miklum áhyggjum með framkvæmd á útfærslu styttingar vinnuvikunnar hjá sveitarfélögunum um land allt. Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitafélögin vítt og breytt um landið hafa ekki sinnt verkefninu og fá algera falleinkun. Samantekin tölfræði sýnir að starfsfólk á skrifstofum semur um fulla styttingu án teljandi vandkvæða en starfsfólk í leik- og grunnskólum og slíkum störfum fái litla eða enga styttingu. Ríki og Reykjavíkurborg hafa staðið sig betur.

Fundurinn skorar á Samband íslenskra sveitarfélaga og sveitarfélögin að hysja upp um sig buxurnar og standa við gerðan kjarasamning.

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026