Óskað eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar

Höfundur

Ritstjórn

Jafnréttisráð óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Jafnréttisráðs fyrir árið 2019. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála í víðri merkingu.

Rökstuðningur vegna tilnefningar skal fylgja með. Einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum. Til að koma til álita við veitingu Jafnréttisviðurkenningarinnar þarf viðkomandi aðili að vera tilbúinn að taka á móti fulltrúum Jafnréttisráðs og svara spurningum þess.

Tilnefningum skal skila rafrænt eigi síðar en 27. september 2019 til Jafnréttisráðs á netfangið jafnrettisrad@jafnretti.is

Hér má finna prentvæna útgáfu af auglýsingunni sem tilvalið er að prenta út og hengja upp á kaffistofunni.

Við hvetjum sem flesta til að senda inn tilnefningu.

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026