Nýr vinnuverndarsjóður tekur við umsóknum

Höfundur

Ritstjórn

Vinnuverndarsjóður er nýtt samstarfsverkefni félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins og Vinnueftirlitsins. Markmið sjóðsins er að efla rannsóknir á sviði vinnuverndar og stuðla að bættri vinnuvernd á íslenskum vinnumarkaði. Sjóðurinn styrkir verkefni og rannsóknir sem miða að því.

Frestur til að skila inn umsóknum í sjóðinn er til 28. nóvember. Stefnt er að úthlutun styrkja í desember 2023.

Áhugasöm eru hvött til að kynna sér nánar reglur um úthlutun styrkja úr Vinnuverndarsjóði en við mat á umsóknum verður einkum litið til verkefna og rannsókna er varða:

  • tengsl einstakra sjúkdóma og vinnutengdra einkenna við vinnuumhverfi
  • samfélagslegan og efnahagslegan ávinning af vinnuvernd
  • orsakir, tíðni og þróun vinnuslysa í ákveðnum starfsgreinum
  • jákvæða ímynd og viðhorf almennings til vinnuverndar
  • vitundarvakningu einstakra hópa á vinnumarkaði um vinnuvernd, svo sem starfsfólks sem skilur ekki íslensku, ungs fólks og starfsfólks er sinnir áhættusömum störfum
  • þekkingu á mikilvægi góðrar vinnustaðamenningar
  • tengsl slæmra vinnuskilyrða og fjarveru starfsfólks
  • aukna vitund almennings um vinnutengda kulnun og hvernig megi fyrirbyggja hana
  • nýsköpun á sviði vinnuverndar
  • viðbrögð við áhrifum aukinnar sjálfvirkni og tæknivæðingar á vinnuumhverfið
  • áhrif samþættingar fjarvinnu og vinnu á vinnustað á vinnuvernd

Tengsl einstakra sjúkdóma og vinnutengdra einkenna við vinnuumhverfi
Við fyrstu úthlutun sjóðsins verður lögð sérstök áhersla á verkefni og rannsóknir er varða tengsl einstakra sjúkdóma og vinnutengdra einkenna við vinnuumhverfi.

Gæði rannsóknar- eða verkefnaáætlunar ásamt vísindalegu gildi, nýmæli og mikilvægi er lagt til grundvallar við mat á styrkhæfi umsókna auk menntunar og hæfis umsækjenda.

Stjórn sjóðsins annast mat á umsóknum um styrki en hana skipa fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Vinnueftirlitinu.

Vinnuverndarsjóður hefur 10 milljónir króna til úthlutunar á árinu 2023.

Hámarksstyrkur til einstaks verkefnis er 4 milljónir króna.

Umsóknir sendist á vinnueftirlit@ver.is. Óska má eftir nánari upplýsingum í gegnum sama netfang.

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026