Nýr kjarasamningur samþykktur hjá öllum félögum SGS

Höfundur

Ritstjórn

Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins á hinum almenna vinnumarkaði liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta. Starfsgreinasambandið hélt utan um sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu meðal 18 félaga um nýjan samning, en AFL Starfsgreinafélag sá sjálft um sína atkvæðagreiðslu.

Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 12. til 23. apríl. Í heildina var kjörsókn 12,78%, já sögðu 80,06% en nei sögðu 17,33%. 2,61% tóku ekki afstöðu. Á kjörskrá voru 36.835 manns.

Niðurstöðurnar voru afgerandi í öllum félögunum nema einu, en í 17 af 19 félögum var samningurinn samþykktur með yfir 70% atkvæða.

Samningurinn á hinum almenna vinnumarkaði, sem undirritaðir voru 3. apríl síðastliðinn, telst því samþykktur hjá eftirfarandi félögum:

AFLi Starfsgreinafélagi, Öldunni stéttarfélagi, Bárunni stéttarfélagi, Drífandi stéttarfélagi, Eflingu stéttarfélagi, Einingu-Iðju, Framsýn stéttarfélagi, Stéttarfélagi Vesturlands, Stéttarfélaginu Samstöðu, Verkalýðsfélagi Akraness, Verkalýðsfélagi Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis, Verkalýðsfélagi Snæfellinga, Verkalýðsfélagi Suðurlands, Verkalýðsfélagi Vestfirðinga, Verkalýðsfélagi Þórshafnar, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðsfélaginu Hlíf.

Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í hverju félagi fyrir sig

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026