Ný upplýsingasíða fyrir fólk sem er nýtt á íslenskum vinnumarkaði

Höfundur

Ritstjórn

Nýr vefur, labour.is, er kominn í loftið en um er að ræða upplýsingasíðu fyrir fólk sem er nýtt á íslenskum vinnumarkaði.

Síðan er á 11 tungumálum: ensku, pólsku, litháísku, lettnesku, spænsku, rúmensku, arabísku, úkraínsku, rússnesku, farsi (persnesku) og íslensku.

Helsta innihald síðunnar:
• almennar upplýsingar um réttindi á vinnumarkaði
• leiðbeiningar um lestur launaseðla
• upplýsingar til að hjálpa fólki að finna sitt stéttarfélag
Þá er hægt að senda fyrirspurnir og ábendingar gegnum síðuna, annað hvort undir nafni eða nafnlaust.

Samhliða útgáfu vefsíðunnar kemur út bæklingur, einnig á 11 tungumálum.

Bæklingurinn verður aðgengilegur vef ASÍ en einnig má hafa samband við skrifstofu Alþýðusambandsins og óska eftir að fá send eintök.

Smelltu hér til að skoða bæklinginn.

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026