Mótmælum á Austurvelli 10. september!

Höfundur

Ritstjórn

Þrálát verðbólga og háir vextir hafa haft alvarlegar afleiðingar á fjölda heimila landsins vegna síhækkandi verðs á nauðsynjavörum og húsnæðiskostnaðar. Ástandið bitnar verst á þeim sem minnst hafa á milli handanna og rannsóknir sýna að fólk ber ekki von til að ástandið lagist í bráð.

Þrátt fyrir að þetta hafi verið brýnasta viðfangsefni stjórnvalda síðustu ár hafa þau með athafnaleysi sínu neitað að axla ábyrgð á efnahagsástandinu og eftirlátið Seðlabankanum algerlega hagstjórnina. Skattalækkunum og óvæntum meiriháttar útgjöldum hefur ekki verið mætt með tekjuöflun, eftirlit með markaðsöflum er í skötulíki á meðan fákeppni ýtir undir hærra verðlag. Fögrum áformum um uppbyggingu húsnæðis hefur ekki verið fylgt eftir. Allt ýtir þetta undir verðbólguna og afleiðingarnar eru hátt vaxtastig langt umfram það sem heimilin og fyrirtækin geta borið.

Við sættum okkur ekki við aðgerðaleysið – stjórnvöld verða að sýna samstöðu með heimilum í landinu í verki! Strax!

Alþýðusamband Íslands (ASÍ), BSRB og Kennarasamband Íslands (KÍ) boða til mótmæla á Austurvelli þann 10. september næstkomandi, kl. 16:00. Vinnandi stéttir munu þar mótmæla skeytingarleysi stjórnvalda gagnvart hárri verðbólgu og vöxtum.

Nú er nóg komið!

Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ

Tengdar fréttir

  • Enginn norrænn viðbúnaður án launafólks

    Helsinki, 23. september 2026 Fimmta þing Norræna verkalýðssambandsins (NFS), sem…

    Ritstjórn

    23. okt 2026

  • ASÍ: Aukin skattbyrði og ekkert fé í vinnumarkaðsaðgerðir

    Alþýðusamband Íslands (ASÍ) segir fyrirhugaðar breytingar á persónuafslætti og þrepamörkum…

    Ritstjórn

    20. okt 2026

  • Hagspá ASÍ 2026 – 2028 komin út

    Útlit er fyrir hægagang í íslensku hagkerfi á næstu árum…

    Ritstjórn

    13. okt 2026