Málstofa – Staðgreiðsla og skattbyrði í 30 ár

Höfundur

Ritstjórn

Útgáfa Tímarits um viðskipti og efnahagsmál (TVE) 9. janúar 2020, 12.00-13.00

Staðgreiðsla og skattbyrði í 30 ár
Útgáfuboð og málstofa í tilefni af útkomu 2. tbl. 16. árg. Tímarits um viðskipti og efnahagsmál (www.efnahagsmal.is) verður haldið fimmtudaginn 9. janúar, kl. 12.00-13.00, í stofu 101 á Háskólatorgi (Ingjaldsstofa), í Háskóla Íslands.

Frummælendur eru Axel Hall, lektor við Háskólann í Reykjavík, og Henný Hinz, deildarstjóri hagdeildar ASÍ.
Úgáfuboðið er unnið í samstarfi við ASÍ, og mun rýna í núverandi skattkerfi tekjuskatts sem hefur verið við lýði frá upptöku staðgreiðslunnar 1988. Skattkerfið verður greint, eiginleikum þess lýst og fjallað um fyrirhugaðar breytingar á því.

Fyrirspurnir og umræður verða að erindum loknum, og síðan verður boðið upp á kaffiveitingar. Allir velkomnir.

Dagskrá fyrir málstofuna:
12.00 – Gylfi Zoega, formaður ritstjórnar TVE, býður gesti velkomna
12.05 – Axel Hall, höfundar greinarinnar Staðgreiðsla og skattbyrði í 30 ár
12.20 – Henný Hinz, deildarstjóri hagdeildar ASÍ
12.30-13.00 – Spurningar úr sal

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026