Halldóra Sveinsdóttir nýr 3. varaforseti ASÍ

Höfundur

Ritstjórn

Halldóra Sigríður Sveinsdóttir formaður Bárunnar stéttarfélags á Selfossi var í dag kosin 3. varaforseti ASÍ á fundi miðstjórnar sambandsins. Ragnar Þór Ingólfsson hefur gegnt embætti 3. varaforseta en verður 2. varaforseti eftir að Sólveig Anna Jónsdóttir sagði af sér öllum trúnaðarstörfum fyrir ASÍ í byrjun mánaðarins.

Halldóra sem er 61 árs hefur verið formaður Bárunnar frá árinu 2010 en starfssvæði félagsins er Árnessýsla utan Ölfus og eru félagsmennirnir rúmlega 2100. Hún hefur setið sem aðalmaður í miðstjórn ASÍ frá árinu 2018 og tekið þátt í fjölmörgum trúnaðarstörfum á vegum hreyfingarinnar að auki.

Þórarinn Sverrisson, formaður Öldunnar á Sauðárkróki, kemur inn sem aðalmaður í miðstjórn.

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026