Förum ekki í sama farið – byggjum upp heilbrigðari atvinnugrein

Höfundur

Drífa Snædal

Nú er beðið eftir að ferðaþjónustan fari á fullt aftur og greiningardeildirnar hamast við að finna tímasetninguna. Verður það næsta sumar eða ekki fyrr en næsta haust? Hvenær verður hægt að endurræsa ferðaþjónustuna? Í umræðunni liggja væntingar um afturhvarf til þess sem var; góðærisins, gjaldeyristeknanna og hás atvinnustigs. Og vissulega litu efnahagsreikningarnir betur út fyrir ári síðan. En það er eitt sem gleymdist í allri stefnumótun stjórnvalda varðandi ferðaþjónustuna – starfsfólkið. Ferðaþjónustan byggir, umfram margar aðrar greinar, á fjölda starfsfólks, viðmóti þess og þjónustulund. Nú er lag að fara ekki í sama farið heldur endurræsa þessa mikilvægu atvinnugrein á skynsamlegri nótum en áður. Það er ekki náttúrulögmál að ferðaþjónustan sé láglaunaatvinnugrein með ótryggum ráðningarsamböndum og ótrúlegum fjölda kjarasamningsbrota.

Alþýðusambandið hefur gefið út áherslur um uppbyggingu ferðaþjónustunnar á nýjum grunni þar sem þess er krafist að hagsmunir launafólks verði einn af hornsteinum starfsins. Að í ljósi mikilvægi greinarinnar fyrir íslenskt hagkerfi verði að mynda sátt um bætt kjör og aðbúnað starfsfólks enda verður arðsemi og sjálfbærni ekki náð öðruvísi. Lyfta verður grettistaki í að uppræta brotastarfsemi sem því miður hefur verið allt of tíð í ferðaþjónustunni. Þar ber hæst atvinnuöryggi og að þeir atvinnurekendur sem brjóta á fólki verði gerðir ábyrgir.
Nýtum tímann áður en ferðaþjónustan fer á fullt skrið og búum í haginn fyrir ábyrga, mannúðlega og skynsama atvinnugrein. Fyrsta skrefið í því er að leggja áherslu á starfsfólk í allri stefnumótun.

Hér má kynna sér áherslur ASÍ um uppbyggingu ferðaþjónustunnar.

Góða helgi,
Drífa

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026