Bjarg íbúðafélag byggir 74 leiguíbúðir á Gelgjutanga í Reykjavík

Höfundur

Ritstjórn

Fyrsta skóflustunga að 74 nýjum leiguíbúðum sem Bjarg íbúðafélag byggir við Bátavog 1, á Gelgjutanga við Vogabyggð var tekin í dag.

Nú þegar er Bjarg með yfir 200 íbúðir í útleigu á þremur mismunandi stöðum, á Móavegi, Grafarvogi, í Urðarbrunni, Úlfarsárdal og í Asparskógum á Akranesi. Þá eru framkvæmdir við á þriðja hundrað nýjar íbúðir komnar vel á veg og hátt í 500 íbúðir eru í hönnunarferli.

Næstu afhendingar Bjargs eru á eftirfarandi stöðum í Reykjavík seinna á þessu ári; í Silfratjörn í Úlfarsárdal, í Hraunbæ og í Hallgerðargötu við Kirkjusand. Þá eru einnig afhendingar á næstu mánuðum á íbúðum Bjargs á Akureyri og í Þorlákshöfn.

Byggingarfélagið Jáverk mun sjá um byggingu fjölbýlishúsanna við Bátavog, Verkfræðistofa Reykjavíkur sér um verkfræðihönnun og arkitekt er T.ark arkitektar.

Bjargi er ætlað að skapa tekjulægri hópum öruggt og gott húsnæði, íbúðir félagsins eru því afar mikilvæg viðbót inn á húsnæðismarkaðinn.

Nánari upplýsingar og skilyrði fyrir úthlutun má finna á heimasíðu félagsins bjargibudafelag.is

Tengdar fréttir

  • Verðbólga yfir forsendum kjarasamninga

    Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2% í ágúst frá fyrri mánuði…

    Ritstjórn

    27. ágú 2026

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026