Bjarg fær íbúðir við Móaveg 2-12 afhentar sex mánuðum á undan áætlun

Höfundur

Ritstjórn

ÍAV afhenti 17. janúar 2020 síðustu 15 íbúðirnar af samtals 155 íbúðum, í sex blokkum auk bílakjallara, á Móavegi 2-12, til Bjargs íbúðafélags.

Þar með eru leiguíbúðir í eigu Bjargs sem komnar eru í útleigu orðnar 194 en í þeim búa núm um 440 einstaklingar. Næstu leiguíbúðir sem verða afhentar verða á Hallgerðargötu við Kirkjusand, í Þorlákshöfn, Guðmannshaga á Akureyri og Silfratjörn í Úlfarsárdal.

———–

Bjarg íbúðafélag er húsnæðissjálfseignarstofnun stofnuð af ASÍ og BSRB. Félagið er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu. Um er að ræða svokölluð leiguheimili að norrænni fyrirmynd. Forsendur þess hve vel verkefnið hefur gengið, má rekja til árangursríks samstarfs við Bjarg, hönnuði verkefnisins, fjölda undirverktaka og birgja.

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026