Í umsögn ASÍ um fjárlagafrumvarp næsta árs er m.a. gagnrýnt að ekki skuli brugðist við erfiðum aðstæðum á húsnæðismarkaði, að bætur almanna- og atvinnuleysistrygginga haldi ekki í við launaþróun og að fyrirhugaðar breytingar á barnabótakerfinu muni lækka bætur meirihluta barna þar sem það verði einungis ætlað þeim allra tækjulægstu.
Alþýðusambandið saknar þess að ekki sé minnst á skattlagningu fjármagns í samhengi við veikari tekjustofna hins opinbera. Í nýlegri skýrslu ASÍ, Skattar og ójöfnuður, er bent á að reglur sem takmarka tekjutilflutning myndu auka árlegar skatttekjur um á bilinu 3-8 milljarða króna og styrkja tekjuöflun sveitarfélaga í gegnum útsvar.
Alþýðusambandið ítrekar að það er ekki ásættanlegt að skera niður nauðsynlegar fjárfestingar til að mæta tímabundnum sveiflum í hagkerfinu. Þannig voru það mistök að ráðast í mikinn niðurskurð eftir fjármálahrunið. Sú stefna endurspeglast m.a. í litlum fjárfestingum í heilbrigðiskerfinu sl. áratug og rekstrarframlögum sem hafa ekki haldist í hendur við aukna þörf.
Þá bendir ASÍ á að framlög til framhaldsfræðslukerfisins munu að óbreyttu dragast saman milli ára sé leiðrétt fyrir verðlagi. Framlög til símenntunar og fullorðinsfræðslu hafa lækkað um árabil þrátt fyrir fyrirheit og kortlagningu á framtíðaráskorunum. Svipaður skortur er á aðgerðum til að efla iðn- og tækninám, en framlög til vinnustaðanámssjóðs rýrna að raungildi milli ára.
Hér má lesa umsögn ASÍ um fjárlagafrumvarpið í heild sinni.

Athugasemdir ASÍ við fjárlagafrumvarpið
Tengdar fréttir
Enginn norrænn viðbúnaður án launafólks
Helsinki, 23. september 2026 Fimmta þing Norræna verkalýðssambandsins (NFS), sem…
Verðbólga yfir forsendum kjarasamninga
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,2% í ágúst frá fyrri mánuði…
Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…




