ASÍ styrkir Hjálparstarf kirkjunnar um jólin

Höfundur

Ritstjórn

Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, afhenti Hjálparstarfi Kirkjunnar styrk upp á 800 þúsund krónur fyrr í dag. Styrkurinn fer til innanlandshjálpar Hjálparstarfs kirkjunnar, sem hefur undanfarin ár verið með því sniði að skjólstæðingar fá gjafakort svo þeir geti valið sinn mat sjálfir. Með þessu móti er neyð fólks mætt af mannvirðingu og á þann hátt sem örugglega nýtist hverjum og einum hvað best.

Á meðfylgjandi mynd eru Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar og Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ.

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026