Ályktun Miðstjórnar um nýlega umræðu um fólk á flótta

Höfundur

Ritstjórn

Miðstjórn ASÍ harmar þá stefnu sem umræða um fólk á flótta hefur tekið undanfarna daga. Að stilla fólki á flótta upp sem byrði á íslensku samfélagi er ekki umræðunni til framdráttar og einungis til þess fallið að skapa sundrung og óvild gagnvart allra berskjölduðustu hópum samfélagsins.

Álag á innviði samfélagsins, á heilbrigðis- og skólakerfi, félagsþjónustu og ekki síst, húsnæðismarkað, er uppsafnaður vandi sem vel hefði mátt bregðast við fyrr. Stjórnmálafólk ber ábyrgð á að hér séu
sterkir innviðir og það er grátlegt að ráðherrar í ríkisstjórn reyni að skorast undan þeirri ábyrgð með því að gera fólk á flótta að blóraböggli fyrir því neyðarástandi sem til dæmis ríkir á húsnæðismarkaði.
Ísland er hluti af alþjóðasamfélaginu og hefur um árabil notið góðs af framlagi aðflutts launafólks til samfélagsins. Innflytjendur hafa auðgað samfélagið og aukið velsæld, hér á landi eins og annars staðar.
Sem þátttakandi í alþjóðasamfélagi getur Ísland ekki skorast undan skyldum sínum gagnvart fólki á flótta.

Miðstjórn ASÍ hefur áður bent á mikilvægi þess að greiða götur umsækjenda um alþjóðlega vernd á löglegan vinnumarkað. Þá er nauðsynlegt að stytta verulega vinnslutíma umsókna um alþjóðlega
vernd. Eins þarf að fjárfesta í inngildingarverkefnum sem styðja flóttafólk í að fá góð störf við hæfi. Miðstjórn ASÍ skorar á stjórnvöld að axla ábyrgð á því verkefni sínu að tryggja sterka innviði og
mannúðlegan húsnæðismarkað og forðast ómálefnalega umræðu um fólk á flótta, en slík umræða er hættuleg og ekki til þess fallin að skapa hér gott samfélag

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026