Ályktun miðstjórnar ASÍ um nýlega þróun í leikskólamálum

Höfundur

Ritstjórn

Miðstjórn ASÍ lýsir yfir áhyggjum sínum af nýlegri þróun í dagvistunarmálum sveitarfélaganna, nú síðast á Akureyri, og varar við ófyrirséðum afleiðingum hennar.

Undanfarna mánuði hefur borið á tillögum sem ætlað er að leysa mannekluvanda á leikskólum og auka velferð barna með meiri samveru með foreldrum. Tillögurnar spretta ekki upp úr tómarúmi heldur hefur vanfjármögnun og skammsýni einkennt málaflokkinn um árabil sem bitnað hefur á kjörum og aðbúnaði starfsfólks leikskólanna. Miðstjórn ASÍ leggur áherslu á að það er á ábyrgð sveitafélaganna og stjórnvalda að tryggja fjármögnun leikskólakerfisins og viðunandi aðbúnað starfsfólks.

Bæði Kópavogsbær og Akureyrarbær hafa samþykkt nýjar gjaldskrár sem fela í sér gjaldfrjálsa sex klukkustunda leikskólavist barns. Á móti hækkar gjald þeirra foreldra sem þurfa á lengri vist barna að halda. Samhliða gjaldskrárbreytingum hefur þjónusta verið skert með fjölgun svokallaðra skráningadaga.

Breytingarnar endurspegla með engu móti stöðu foreldra á vinnumarkaði, en yfir 90% barna eru á leikskóla meira en sex klukkustundir á dag. Meðan hátekjufólk með sveigjanlegan vinnutíma og sterkt bakland getur nýtt sér gjaldfrjálsan leikskóla kemur breytingin niður á láglaunafólki, innflytjendum og einstæðum foreldrum í formi hærri gjalda og skertrar þjónustu.

Breytingar munu hafa neikvæð áhrif á stöðu kvenna á vinnumarkaði. Þriðjungur kvenna er nú þegar í hlutastörfum og rannsóknir sýna að umönnunarábyrgð er helsta ástæða þess að konur eru í skertu starfshlutfalli. Með aðgerðunum varpa sveitarfélögin mannekluvanda leikskólanna yfir á foreldra og þá einkum mæður í stað þess að taka á mannekluvandanum innan sinna raða. Þannig vinnur breytingin gegn jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Miðstjórn ASÍ bendir á mótsögnina í hugtakinu „gjaldfrjáls leikskóli“ sem aðeins gagnast litlum hluta foreldra sem sterkt standa fjárhagslega, á kostnað láglaunafólks og því hætta á að aðgerðirnar auki stéttskiptingu. Miðstjórn varar jafnframt við því að með breytingunum er áfram grafið undan velferðarstoðum samfélagsins og forsendum mikillar atvinnuþátttöku á Íslandi.

 

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026