Ályktun miðstjórnar ASÍ um ábyrgð ríkisins á kjörum starfsfólks hjúkrunarheimila

Höfundur

Ritstjórn

Ríkið ber ábyrgð á launum á hjúkrunarheimilum

Tilfærsla á verkefnum hjúkrunarheimila víða á landsbyggðinni síðustu mánuði til ríkisins eða einkarekinna fyrirtækja hefur opinberað verulegan launamun innan starfsgreina sem starfa við aðhlynningu. Töluverður árangur hefur náðst í samningum við sveitarfélög og stofnanir síðustu ár víða um land en sá árangur er í hættu. Við breytingar á rekstri er greinilega ætlunin að miða við lægstu mögulega taxta á höfuðborgarsvæðinu við nýráðningar og getur þar munað allt að 48.000 krónum í grunnlaunum. Krafan er að hækka laun þeirra lægst launuðu en ekki að færa aðra niður í launum. 

Einkavæðing velferðarþjónustu verður ekki liðin enda felur hún í sér kröfu um hagræðingu og hefur ítrekað sýnt sig að einkavæðing grunnstoða kemur niður á starfsfólki, skjólstæðingum og opinberum sjóðum þegar upp er staðið.  

ASÍ mótmælir því harðlega að tilfærsla hjúkrunarheimila feli í sér kjaraskerðingu lægst launuðu stéttanna sem hafa barist fyrir sínum kjörum í áratugi. Daggjöld hjúkrunarheimila eru of lág og fela beinlínis í sér hvata til að greiða lægstu hugsanlegu laun. Það er því á ábyrgð ríkisins að tryggja að laun haldist og greidd séu sömu laun fyrir sömu störf óháð búsetu.

Tengdar fréttir

  • Gjaldskrárhækkun á máltíðum eldri borgara sendir út alröng skilaboð

    Reykjavíkurborg hefur ákveðið að hækka verð á hádegismat fyrir eldri…

    Ritstjórn

    20. ágú 2026

  • Vaxtahækkunin röng ákvörðun á versta tíma

    Vaxtahækkun við núverandi aðstæður er röng, illa tímasett og leggur…

    Ritstjórn

    19. ágú 2026

  • HÝR VINNUMARKAÐUR

    Samtal í boði ASÍ, BHM, BSRB og KÍ föstudaginn 7.…

    Ritstjórn

    5. ágú 2026