Alþýðusamband Íslands (ASÍ) varar við þróun í alþjóðasamskiptum þar sem virðing fyrir alþjóðareglum fer minnkandi og áhrif voldugra fjölþjóðlegra fyrirtækja aukast. Sambandið segir gríðarlega auðsöfnun fámenns hóps grafa undan grundvallarréttindum vinnandi fólks og veikja stoðir lýðræðis og velferðar.
Þetta kemur fram í stefnu og grunngildum ASÍ í alþjóðamálum sem 47. þing ASÍ samþykkti á dögunum.
Þar segir að markvisst hafi verið grafið undan starfi og stöðu stéttarfélaga, meðal annars með því að veikja framkvæmd alþjóðlegra samninga sem réttindi þeirra byggja á. Jafnframt segir að fámennur hópur auðmanna beiti fjármagni sínu til að grafa undan grundvallarréttindum vinnandi fólks og styðji stjórnmálaöfl sem vinni gegn félagslegum réttindum launafólks.
Í stefnunni er einnig fjallað um spillingu og minnkandi virðingu fyrir lögum og rétti. ASÍ segir þessa þróun eiga sér stað þvert á landamæri og tekur sérstaklega fram að Ísland sé þar ekki undanskilið.
Stefna ASÍ í alþjóðamálum byggir á mannréttindum og vinnurétti, lýðræði og félagslegu réttlæti. Sambandið leggur áherslu á að alþjóðaviðskipti og efnahagskerfi þjóni samfélagslegum hagsmunum og styðji sjálfbæra þróun.
Stefnu og grunngildi 47. þings ASÍ í alþjóðamálum má lesa í heild á þingvef ASÍ.





