47. þing Alþýðusambands Íslands kaus í dag forseta, þrjá varaforseta og nýja miðstjórn sambandsins til næstu tveggja ára.
Georg Páll Skúlason var kjörinn forseti ASÍ. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, var kjörin 1. varaforseti, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavíkur, 2. varaforseti og Berglind Kristófersdóttir, Flugfreyjufélagi Íslands, 3. varaforseti.
Auk þeirra skipa miðstjórn:
Gunnar Sigurðsson, VM – Félagi vélstjóra og málmtæknimanna
Óskar Hafnfjörð Gunnarsson, MATVÍS
Hilmar Harðarson, Félagi iðn- og tæknigreina
Valmundur Valmundarson, Sjómannafélaginu Jötni
Jónas Yngvi Ásgrímsson, VR
Tómas Gabríel Benjamín, VR
Júlíana Einarsdóttir, VR
Eiður Stefánsson, Félagi verslunar og skrifstofufólks Akureyri
Aðalsteinn Árni Baldursson, Framsýn stéttarfélagi
Tryggvi Jóhannsson, Einingu-Iðju
Jakob Tryggvason, Grafíu






