47. þingi Alþýðusambands Íslands, sem staðið hefur yfir á Hilton Reykjavík frá 14. október undir yfirskriftinni „Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu“, lýkur í dag. Þingið hefur samþykkt ályktanir um efnahagslegt og félagslegt réttlæti, um góð störf, réttindi og öryggi launafólks á breyttum vinnumarkaði og um færni, þekkingu og menntun.
Í ályktununum krefst þingið þess að ávinningur nýrrar tækni og grænna umskipta skili sér til almennings en ekki fárra, hafnar því að efnahagslegum áskorunum sé mætt með auknum byrðum á launafólk og skorar á stjórnvöld og sveitarfélög að tryggja örari uppbyggingu viðráðanlegs húsnæðis um allt land. Ályktanirnar fara hér á eftir í heild sinni.
Á næstu dögum munu birtast greiningar og fréttir upp úr þessum ályktunum og meðfylgjandi greinargerðum á ASI.is
Ályktun 47. þings ASÍ um efnahagslegt og félagslegt réttlæti
Fertugasta og sjöunda þing ASÍ áréttar að framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu verður ekki skilin frá efnahagslegu og félagslegu réttlæti. Á komandi árum munu tækni- og loftslagsbreytingar, lýðfræðilegar breytingar og óvissa í alþjóðamálum hafa mikil áhrif á störf, lífskjör og stöðu launafólks. Við slíkar aðstæður skipta viðbrögð stjórnvalda, stefnumörkun og traust regluverk sköpum til að verja almannahag og lífskjör launafólks.
Þingið áréttar að við þessar aðstæður er brýnt að efnahags- og skattastefnan ýti ekki undir ójöfnuð, dýpki gjána milli þeirra sem eiga og eiga ekki og dragi úr félagslegum hreyfanleika. Á tímum örra tækni- og loftslagsbreytinga verður enn brýnna fyrir stjórnvöld að tryggja húsnæðisöryggi allra, fjárfesta í velferð og treysta félagsleg öryggisnet.
Á undanförnum árum hafa verðbólga, hátt vaxtastig og íþyngjandi húsnæðiskostnaður þrengt að stöðu margra heimila. Ástandið leggst þyngst á barnafólk, tekjulága, skuldsett heimili og leigjendur. Sú hugmyndafræði að mæta slíkum efnahagslegum áskorunum með aukinni gjaldtöku á heimili, skerðingu réttinda atvinnulausra, skertu aðgengi að almannaþjónustu eða niðurskurði í tilfærslukerfum barnafólks, leigjenda og skuldara er röng leið.
Í tæp fjögur ár hefur háum stýrivöxtum verið beitt af hörku í von um að ná niður verðbólgu. Sú stefna er gengin sér til húðar og gerir ekkert annað en að þrengja að barnafólki, skuldurum og leigjendum á meðan fjármagnseigendur hagnast. Efnahagsleg staða innflytjenda er bág og vísbendingar eru um aukinn ójöfnuð milli kynslóða sem erfitt verður að vinda ofan af.
Þing ASÍ leggur áherslu á að markmið um efnahagslegan stöðugleika, lækkun vaxta og bætt lífskjör verða aðeins að veruleika ef stjórnvöld, sveitarfélög og atvinnurekendur axli einnig ábyrgð. Fyrirtæki verða að taka þátt í því verkefni með ábyrgri verðlagningu og stjórnvöld verða að verja þau kerfi sem styðja við afkomuöryggi, atvinnuþátttöku og jöfnuð.
Þing ASÍ hafnar þeirri forgangsröðun að mæta efnahagslegum áskorunum með auknum byrðum á launafólk, veikari réttindum og skertri almannaþjónustu. Slík stefna getur aldrei orðið grundvöllur sáttar á vinnumarkaði.
Húsnæðisöryggi er óaðskiljanlegur hluti af afkomuöryggi launafólks. Um árabil hafa óviðunandi aðstæður ríkt í húsnæðismálum þar sem hátt húsnæðisverð, háir vextir og lausbeislaður leigumarkaður hafa gert að verkum að húsnæðiskostnaður stórra hópa launafólks er afar íþyngjandi. Ungu fólki og almennu launafólki er í vaxandi mæli gert ókleift að komast inn á eignamarkað og margir sitja eftir á leigumarkaði þar sem leiga er orðin óbærilega há og húsnæðisöryggi er ekki tryggt.
Fertugasta og sjöunda þing ASÍ minnir á að þak yfir höfuðið er grundvallarforsenda mannsæmandi lífskjara. Stöðugleiki á húsnæðismarkaði og viðráðanlegur húsnæðiskostnaður er jafnframt forsenda hóflegrar verðbólgu og friðar á vinnumarkaði. Þingið skorar á stjórnvöld og sveitarfélög að axla ábyrgð á húsnæðismálum og tryggja mun örari uppbyggingu öruggs, viðráðanlegs og óhagnaðardrifins húsnæðis um allt land.
Uppbygging húsnæðis, öflug félagsleg réttindi, sterk almannaþjónusta og jafnt aðgengi að menntun og færniþróun eru lykilviðfangsefni komandi ára. Án markvissra aðgerða á þessum sviðum verður erfiðara fyrir fólk að byggja upp örugga afkomu, taka þátt í samfélaginu og mæta breytingum á vinnumarkaði. Slík þróun myndi ýta undir ójöfnuð, festa fólk í fátæktargildrum og vinna gegn verðmætasköpun.
Ályktun 47. þings ASÍ um góð störf, réttindi og öryggi launafólks á breyttum vinnumarkaði
Fertugasta og sjöunda þing Alþýðusambands Íslands (ASÍ) krefst þess að þær breytingar sem nú ganga yfir vinnumarkað og samfélag verði nýttar í þágu almennings. Þingið ályktar að ekki verði liðið að tækniþróun og græn umskipti verði notuð sem tæki til að auka enn samþjöppun auðs og ójöfnuð á kostnað kjara og réttinda launafólks.
Alþýðusamband Íslands hafnar þeirri framtíðarsýn að tækni á borð við gervigreind og sjálfvirkni skili enn meiri auði til fjármagnsafla og stórfyrirtækja en vinnandi fólk verði skilið eftir með lakari kjör og aukið vinnuálag. Þvert á móti verður ávinningur nýrrar tækni og aukinnar framleiðni að skila sér í bættum lífskjörum, styttri vinnuviku, sterkari almannaþjónustu og auknum lífsgæðum almennings.
Þingið krefst þess að ný störf sem verða til vegna tæknibreytinga, orkuskipta og loftslagsaðgerða verði örugg og byggð á kjarasamningum og fullum réttindum launafólks. Ótækt er að sjálfvirknivæðing, stafræn þróun eða önnur umbreyting atvinnulífsins verði notuð til félagslegra undirboða, gerviverktöku, aukinnar útvistunar, uppbrots ráðningarsambanda eða annars konar atlögu að skipulögðum vinnumarkaði.
ASÍ hafnar jafnframt þeirri þróun að gervigreind og stafræn stjórnun sé notuð til aukins eftirlits með starfsfólki eða ákvarðana sem fólk fær hvorki skilið né skýringar fást á.
Vinnandi fólk verður að hafa raunveruleg áhrif á hvernig ný tækni, orkuskipti og breytingar á atvinnulífi móta störf, skipulag vinnunnar og vinnumarkað framtíðarinnar.
Réttlát umskipti verða ekki til af sjálfu sér. Þau krefjast skýrrar pólitískrar stefnu, sterkrar verkalýðshreyfingar og raunverulegs samráðs stjórnvalda, atvinnurekenda og launafólks. Þing ASÍ krefst þess að stjórnvöld móti skýra stefnu um framtíð vinnunnar í samráði við verkalýðshreyfinguna.
Aldrei verður samþykkt að almenningur axli byrðarnar en arður af breytingum renni til fárra.
Við erum á rangri leið og nauðsynlegt að stíga á bremsuna. Setja þarf skýrar reglur um persónuvernd, félagsleg og lagaleg áhrif nýrrar tækni og hvernig ávinningi af aukinni framleiðni vegna innleiðingar gervigreindar verði skipt með sanngjörnum hætti svo allir njóti góðs af.
Ályktun 47. þings ASÍ um færni, þekkingu og menntun á breyttum vinnumarkaði
Fertugasta og sjöunda þing Alþýðusambands Íslands (ASÍ) krefst þess að launafólki verði tryggð full aðkoma að þeim umskiptum sem nú ganga yfir vinnumarkaðinn vegna nýrrar tækni og loftslagsbreytinga.
Þing ASÍ ályktar að umbreytingar í íslensku atvinnulífi sem leiði til óöryggis, afkomuskerðinga og aukins ójöfnuðar verði ekki liðnar.
Launafólk njóti ávinnings framfara og því verði tryggður skýlaus réttur til að taka þátt í þróun til nýrra starfa og breyttra atvinnuhátta á forsendum réttlætis, félagslegs stöðugleika og inngildingar.
Forsenda réttlátra umskipta á vinnumarkaði er að launafólki verði tryggt bætt aðgengi að markvissri sí- og endurmenntun og að réttur til náms og starfsþróunar vegna breytinga í atvinnulífinu verði að fullu viðurkenndur. Launafólk njóti jafnframt fjárhagslegs öryggis á námstíma og verði þannig gert kleift að afla sér aukinnar þekkingar og færni án þess að stefna afkomu sinni í hættu.
Þing ASÍ ályktar að þetta verði aðeins gert með samstilltu átaki verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda og stjórnvalda um að efla og tryggja öflugt mennta- og afkomutryggingakerfi vegna breyttra aðstæðna vinnandi fólks. Slíkt kerfi þarf að byggja á skýrum réttindum í kjarasamningum, traustum stuðningskerfum vinnumarkaðarins og félagslegu námslánakerfi. Þannig verði öllum tryggð réttlát hlutdeild og tækifæri til þátttöku á breyttum vinnumarkaði.
Ályktanirnar og greinargerðirnar sem þeim fylgja má lesa í heild á þingvef ASÍ.





